- What: Detection of pharmaceutical residues in water
- Impact: Indicates potential environmental contamination
Innlent | Morgunblaðið | 17.3.2026 | 13:13 Lyfin í vatninu vísa á mengun Lyf eru þörf og mikilvæg en meðhöndla verður þau af mikilli varúð. mbl.is/Friðrik Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Leifar lyfja af fjölbreyttum toga komu í ljós í þeim skimunum í vötnum á Íslandi sem gerðar voru á síðasta ári. Tiltaka má þarna lyf sem notuð eru til að vinna á of háum blóðsykri, krabbameinum, flogaveiki, hjartsláttaróreglu og astma svo eitthvað sé nefnt. „Nokkur þessara efna eru þekkt fyrir litla niðurbrotshæfni í skólpi og eru notuð sem vísbendingar um áhrif mengunar í fráveituvatni,“ segir Andreas Fossick Ströberg í teymi hafs og vatns hjá Umhverfis- og orkustofnun sem stóð að þessu verkefni. Styrkur lyfja var almennt lítill í rannsóknum sem gerðar voru í nágrenni mesta þéttbýlis landsins, það er í Tjörninni í Reykjavík og Kópavogslæk. Hærri styrkur lyfjaleifa greindist við fráveitur í Ölfusá við Selfoss og í Varmá við Hveragerði. Vakta þrávirku efnin Auk lyfjaleifa eru einnig plöntuvarnarefni og efni í sólarvörn það sem rannsóknarfólk greindi. „Engar mælingar skera sig úr að því marki að styrkur tiltekinna efna sé óvenjulega mikill. Frekar má segja að þær lyfjaleifar sem finnast í fráveituvatni endurspegli almenna lyfjanotkun í samfélaginu,“ segir Andreas. Vöktun mengunarefna í vatni samkvæmt vatnaáætlun hefur einkum beinst að hættulegum og þrávirkum efnum. Samhliða þeirri vöktun hefur síðan 2018 einnig verið sinnt vöktun samkvæmt sérstökum vaktlista þar sem fylgst er með efnum, svo sem lyfjaleifum og hormónum, sem takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um en geta haft áhrif á vatnavistkerfi. Árið 2025 var skimað fyrir um 160 mismunandi hormónum og lyfjaleifum á fjórum stöðum á landinu og eru þeir nefndir hér að framan. Sýklalyf af skynsemi „Vatnaáætlun er ætlað að vernda vistfræðilegt og efnafræðilegt ástand vatns. Í framkvæmd nær hún fyrst og fremst til ástands vatnavistkerfa og hefðbundinna mengunarefna,“ tiltekur Andreas. Hann undirstrikar mikilvægi þess að mælingar þær sem hér eru kynntar séu gerðar á einum tímapunkti. Því megi ekki draga of miklar ályktanir um styrk efnanna. „Eftir inntöku skiljast mörg lyf út úr líkamanum, annaðhvort óbreytt eða virk. Losun á efnum sem innihalda hormón hefur líka valdið áhyggjum, þar sem jafnvel mjög lítill styrkur getur haft áhrif á æxlun og hormónastarfsemi vatnalífvera. Skynsamleg notkun, sérstaklega á sýklalyfjum, skiptir máli fyrir alla. Meðhöndlun lyfja eftir notkun, til dæmis að farga þeim ekki í salerni heldur skila í apótek, getur dregið úr óþarfa losun í fráveitu,“ segir Andreas að síðustu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skoraði en úrslitin grátleg Lyfin í vatninu vísa á mengun Sterkari samkeppnisaðili eftir að SAS sleit samstarfi Rýming á Ísafirði vegna snjóflóðs Allir í essinu sínu með bæjó Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Fannst nakin og örend í snjóskafli Rýming á Ísafirði vegna snjóflóðs Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Hviður geta náð allt að 35 m/s Ætla að læra af mistökum sínum Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Norðvestan stormur og hríð Þarf að afturkalla skipulagið Ferðamenn höfnuðu utan vegar Tekjutap líklega vegna pakka Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Skoraði en úrslitin grátleg Lyfin í vatninu vísa á mengun Sterkari samkeppnisaðili eftir að SAS sleit samstarfi Rýming á Ísafirði vegna snjóflóðs Allir í essinu sínu með bæjó Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið Grunaðir um harkalega líkamsárás Gerðu árás á sendiráð Bandaríkjanna í Írak Sterkari samkeppnisaðili eftir að SAS sleit samstarfi Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Hviður geta náð allt að 35 m/s Ætla að læra af mistökum sínum Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Norðvestan stormur og hríð Þarf að afturkalla skipulagið Ferðamenn höfnuðu utan vegar Tekjutap líklega vegna pakka Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir