- What: Study shows impact of cocaine on fish behavior
- Impact: Environmental pollution in Sweden
200 mílur | mbl | 24.4.2026 | 10:45 Lax á kókaíni syndir linnulaust Vättern er annað stærsta stöðuvatn Svíþjóðar. Vísindamenn fylgdust með ungum atlantshafslaxfiskum undir áhrifum kókaíns í vatninu. Ljósmynd/Unsplash Setja bókamerki Ný rannsókn frá Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar (SLU) sýnir að leifar fíkniefna í vatni geti haft veruleg áhrif á hegðun laxa. Fylgst var með ungum atlantshafslaxfiskum undir áhrifum kókaíns í Vättern-vatni en fljótt kom í ljós að þeir syntu meira og dreifðu sér yfir stærri svæði en aðrir fiskar. Fíkniefni í vötnum er sívaxandi umhverfisvandamál í Svíþjóð. „Ef þú borðar fisk úr á eða fljóti í Svíþjóð í dag þá munu vera ólögleg fíkniefni í honum,“ hefur sænski ríkismiðillinn SVT eftir Tomas Brodin, en hann er prófessor í vatnavistfræði við SLU og einn þeirra sem komu að rannsókninni. Rannsóknin beindist sérstaklega að áhrifum bensóýlekgoníns, sem er algengasta niðurbrotsefni kókaíns. Það reyndist hafa mest áhrif á hegðun fiskanna, sem urðu áræðnari og syntu nær tvöfalt lengri vegalengdir en samanburðarfiskar sem ekki voru undir áhrifum efnanna. „Þeir sem eru á kókaíni hafa engin „passíf“ tímabil þar sem þeir synda ekki, heldur eru þeir stöðugt á hreyfingu, segir Brodin. Getur haft afdrifaríkar afleiðingar Samkvæmt vísindamönnunum bendir þetta til þess að núverandi umhverfismat taki ekki nægjanlegt tillit til niðurbrotsefna fíkniefna. Hefðbundið er að meta áhrif upprunalegra mengunarefna en síður þeirra efna sem myndast þegar þau brotna niður. „Ein af niðurstöðunum er jú að þessi efni hafa í raun áhrif á hegðun fiskanna í náttúrunni. Það bendir til þess að við séum að missa af mögulegu umhverfisálagi sem þeir verða fyrir,“ segir Jack Brand, aðalhöfundur rannsóknarinnar jafnframt við SVT. Breytt hegðun getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir fiskana, meðal annars varðandi fæðuleit og hvernig þeir koma sér undan rándýrum. „Því meira sem þú hreyfir þig og ert sýnilegur, því hættulegra er það fyrir þig. Það er auðveldara fyrir rándýr að finna þig og éta þig, segir Brodin.“ Neysla ekki talin hættuleg Vísindamennirnir telja nauðsynlegt að grípa til aðgerða, svo sem að bæta hreinsun fráveituvatns, þróa tækni eða setja nýjar reglur sem draga úr útbreiðslu efnanna. Í það minnsta væri ákjósanlegt að tryggja betra eftirlit með ástandinu. Þrátt fyrir niðurstöðurnar segir Brand að neysla á fiskinum sé ekki talin hættuleg mönnum. „Hlutfallið er mjög lítið og efnin eru nú þegar til staðar í náttúrunni, þannig að þetta er ekki alveg nýtt,“ segir hann. „Þetta eru líka ungir laxar, langt undir leyfilegri veiðistærð, og þegar þeir eru orðnir nógu stórir til að borða eru efnin löngu horfin.“ Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Gísli Jóns er núna Kristrún Sjötugur og gerir út á eikarbát „Við erum B-ið á milli A og C“ Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Nýjar eldvarnavörur auka öryggi á sjó Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Ráðleggur um fjórðungi minni hvalveiðikvóta Ráðherra mættur til Barselóna Hættur hjá Samherja eftir 43 ár KAPP og Laxey skrifa undir samning Sjötugur og gerir út á eikarbát „Við erum B-ið á milli A og C“ Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Nýjar eldvarnavörur auka öryggi á sjó Ráðleggur um fjórðungi minni hvalveiðikvóta KAPP og Laxey skrifa undir samning Sækir þekkingu fyrir fiskeldi í Úganda Ráðherra mættur til Barselóna Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Franskur sjómaður fær ekki að sigla Veiðar á langreyði áformaðar í sumar „Þú hefir drjúgast drukkið Íslands blóð“ Sjötugur og gerir út á eikarbát Töf á viðkomu í Vestmannaeyjum „Veiðarnar eru orðnar óskaplega óhagkvæmar“ Ráðherra mættur til Barselóna Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Fleira áhugavert Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Milljónir munu missa vinnuna Ríkari réttur til kosningaþátttöku Fást hvorki svör né samtal vegna Foreldrahúss Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 23.4.26 605,96 kr/kg Þorskur, slægður 23.4.26 802,47 kr/kg Ýsa, óslægð 23.4.26 265,28 kr/kg Ýsa, slægð 23.4.26 319,27 kr/kg Ufsi, óslægður 23.4.26 234,18 kr/kg Ufsi, slægður 23.4.26 338,59 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 23.4.26 173,67 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.4.26 34,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.4.26 Víkingur SI 78 Handfæri Þorskur 695 kg Samtals 695 kg 24.4.26 Hrafnborg SH 182 Handfæri Ufsi 821 kg Samtals 821 kg 24.4.26 Toni NS 20 Landbeitt lína Þorskur 1.870 kg Keila 178 kg Ýsa 41 kg Steinbítur 18 kg Hlýri 16 kg Samtals 2.123 kg 24.4.26 Emil NS 5 Landbeitt lína Þorskur 1.137 kg Ýsa 482 kg Steinbítur 107 kg Keila 5 kg Skarkoli 2 kg Samtals 1.733 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Gísli Jóns er núna Kristrún Sjötugur og gerir út á eikarbát „Við erum B-ið á milli A og C“ Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Nýjar eldvarnavörur auka öryggi á sjó Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Ráðleggur um fjórðungi minni hvalveiðikvóta Ráðherra mættur til Barselóna Hættur hjá Samherja eftir 43 ár KAPP og Laxey skrifa undir samning Sjötugur og gerir út á eikarbát „Við erum B-ið á milli A og C“ Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Nýjar eldvarnavörur auka öryggi á sjó Ráðleggur um fjórðungi minni hvalveiðikvóta KAPP og Laxey skrifa undir samning Sækir þekkingu fyrir fiskeldi í Úganda Ráðherra mættur til Barselóna Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Franskur sjómaður fær ekki að sigla Veiðar á langreyði áformaðar í sumar „Þú hefir drjúgast drukkið Íslands blóð“ Sjötugur og gerir út á eikarbát Töf á viðkomu í Vestmannaeyjum „Veiðarnar eru orðnar óskaplega óhagkvæmar“ Ráðherra mættur til Barselóna Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Fleira áhugavert Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Milljónir munu missa vinnuna Endurræsing hjá Norðuráli gengið vel Ríkari réttur til kosningaþátttöku Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 23.4.26 605,96 kr/kg Þorskur, slægður 23.4.26 802,47 kr/kg Ýsa, óslægð 23.4.26 265,28 kr/kg Ýsa, slægð 23.4.26 319,27 kr/kg Ufsi, óslægður 23.4.26 234,18 kr/kg Ufsi, slægður 23.4.26 338,59 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 23.4.26 173,67 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.4.26 34,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.4.26 Víkingur SI 78 Handfæri Þorskur 695 kg Samtals 695 kg 24.4.26 Hrafnborg SH 182 Handfæri Ufsi 821 kg Samtals 821 kg 24.4.26 Toni NS 20 Landbeitt lína Þorskur 1.870 kg Keila 178 kg Ýsa 41 kg Steinbítur 18 kg Hlýri 16 kg Samtals 2.123 kg 24.4.26 Emil NS 5 Landbeitt lína Þorskur 1.137 kg Ýsa 482 kg Steinbítur 107 kg Keila 5 kg Skarkoli 2 kg Samtals 1.733 kg Skoða allar landanir »