200 mílur | Morgunblaðið | 17.3.2026 | 6:30 Vantaði vettvang fyrir sérfræðinga Noregur var fyrsta landið sem byrjaði að beita sér fyrir því að stofnuð yrði sérstök alþjóðleg nefnd um fiskveiðistjórnun. Ísland gegndi formennsku í tvö ár en fyrsti staðfundur nefndarinnar var haldinn í Hörpu í lok febrúar. Þá lét Ísland af formennsku og mun Indland gegna því hlutverki næstu tvö ár. mbl.is/Karítas Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Umræða um ábyrga fiskveiðistjórnun hefur ágerst á umliðnum árum og oft er litið til þeirrar áralöngu reynslu sem Ísland og Noregur búa að af uppbyggingu á sínum fiskveiðistjórnunarkerfum. Kristoffer Krogh Bjørklund, fagstjóri við sjávarútvegsdeild norska viðskipta-, iðnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins, segir löndin tvö hafa hag af því að styðja við og stuðla að sjálfbærri fiskveiðistjórnun víðar um heiminn. „Það er augljóst fyrir lönd eins og Ísland og Noreg, sem reiða sig á sjávarútveg og eru með mikla starfsemi í kringum bæði sjávarútveg og lagareldi,“ segir Bjørklund. „Við viljum sýna það á alþjóðasviði að sú stjórnun sem við höfum komið á sé sjálfbær og grundvölluð á vísindum. Það er kannski sjálfhverfa hliðin á þessu.“ Hann bendir þó á að samstarfið snúist ekki aðeins um eigin hagsmuni þjóðanna. Höfin séu auðlind sem nýtt er af mörgum og vandamál á einu svæði geti haft áhrif annars staðar. Reynsla Norðmanna og Íslendinga geti nýst öðrum ríkjum sem vilja bæta fiskveiðistjórnun sína og hafa þar með jákvæð áhrif á heildina. Frétt af mbl.is Þróunarsamvinna í fiskveiðistjórnun „Við deilum þessum praktíska hvata, sem er að leggja okkar af mörkum til alþjóðlegrar stjórnunar,“ segir Bjørklund. „Ég myndi þó segja að við værum að læra af öðrum líka. Okkar hluti heimsins og pólitísk umgjörð eru að mörgu leyti einstök fyrirbæri og okkar lausnir eru sniðnar út frá því en þessu er öðruvísi farið annars staðar í heiminum.“ Vantaði vettvang sérfræðinga Bjørklund bendir til að mynda á að munur sé á því á milli heimssvæða hvernig fiskafurðir eru nýttar. Í Noregi, á Íslandi og einnig í Færeyjum er meirihluti afla fluttur út á alþjóðamarkaði. Í mörgum öðrum löndum er hins vegar stærsti hluti aflans nýttur innanlands. Kristoffer Krogh Bjørklund er fagstjóri hjá norska sjávarútvegsráðuneytinu og segir hann að Ísland og Noregur hafi sannarlega hag af því að stuðla frekar að sjálfbærri fiskveiðistjórnun víðar um heiminn. mbl.is/Karítas Þetta segir Bjørklund að skapi ólíkar áskoranir fyrir stjórnun fiskveiða. Engu að síður telur hann að það málefni sem sameini alla sé mikilvægi sjávarafurða og annarrar bláfæðu fyrir fæðuöryggi. „Hvort sem það eru stór, þróuð iðnaðarlönd eða smærri fiskveiðiþjóðir, þá er þetta viðfangsefni sem allir hafa áhyggjur af.“ Noregur hóf fyrst landa að þrýsta á um að stofnað yrði til sérstakrar nefndar undir fiskveiðinefnd Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem myndi einblína á fiskveiðistjórnun. „Okkur fannst vanta vettvang þar sem sérfræðingar gætu rætt tæknilegri hliðar fiskveiðistjórnunar, en COFI [fiskveiðinefnd FAO] er meira strategísk og pólitísk,“ útskýrir Bjørklund. Frétt af mbl.is Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Undirnefndin var að endingu stofnuð árið 2024 og Ísland gegndi formennsku fyrstu tvö árin. Fyrsti staðfundurinn var haldinn í Hörpu í lok febrúar og að honum loknum lét Ísland af formennsku en Indland tekur við næstu tvö árin. Þróunin mætti vera örari Spurður hvort hindranir standi í vegi fyrir bættri fiskveiðistjórnun segir Bjørklund að þróunin sé að mörgu leyti jákvæð. Sífellt fleiri verðmætir fiskistofnar séu nú veiddir með sjálfbærum hætti, þótt þróunin mætti vissulega vera örari. „Við höfum nú þegar þróað mörg góð stjórntæki innan FAO og COFI. Stóra spurningin er framkvæmdin,“ segir hann og leggur áherslu á að stjórnvöld þurfi að setja sjálfbæra fiskveiðistjórnun í forgang innanlands. Bjørklund segist telja að mikilvægasta framlag Noregs og Íslands sé að sýna fram á að þar sem fiskistofnar eru ofveiddir, skipaflotar of stórir og efnahagsleg skilvirkni slæm, sé viðsnúningur mögulegur. Nægi þar að vísa til sögu landa á borð við Ísland og Noreg, en reynslan sýni að verkfærin séu til staðar ef vilji er fyrir hendi. Frétt af mbl.is „Dýrmæt“ þekking Íslands fyrir heiminn Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi „Dýrmæt“ þekking Íslands fyrir heiminn 97% meiri afli en í febrúar 2025 Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Gagnrýnir framkvæmd úttektar Vantaði vettvang fyrir sérfræðinga „Þetta er sukk og spilling“ Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur „Dýrmæt“ þekking Íslands fyrir heiminn 97% meiri afli en í febrúar 2025 Gagnrýnir framkvæmd úttektar 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik „Þetta er sukk og spilling“ 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Fékk nótina í skrúfuna Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Gagnrýnir framkvæmd úttektar „Þetta er sukk og spilling“ Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Fleira áhugavert Fólk úr öllum áttum fyllti hótelið Náðu ekki lengra en út að vegamótum Allir neita sök í Reykholtsmáli Óskýr svör ráðherra um aðlögun Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 16.3.26 722,98 kr/kg Þorskur, slægður 16.3.26 753,03 kr/kg Ýsa, óslægð 16.3.26 427,95 kr/kg Ýsa, slægð 16.3.26 370,61 kr/kg Ufsi, óslægður 16.3.26 347,38 kr/kg Ufsi, slægður 16.3.26 384,04 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 16.3.26 246,58 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 16.3.26 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet Þorskur 4.270 kg Grásleppa 51 kg Ufsi 46 kg Skarkoli 25 kg Steinbítur 5 kg Samtals 4.397 kg 16.3.26 Fálkatindur NS 99 Grásleppunet Grásleppa 430 kg Þorskur 329 kg Skarkoli 59 kg Steinbítur 13 kg Samtals 831 kg 16.3.26 Skinney SF 20 Botnvarpa Ufsi 58.517 kg Ýsa 33.588 kg Þorskur 25.302 kg Skarkoli 3.138 kg Steinbítur 2.812 kg Langa 2.622 kg Skötuselur 242 kg Sandkoli 239 kg Þykkvalúra 215 kg Keila 84 kg Karfi 74 kg Grásleppa 72 kg Langlúra 56 kg Hlýri 10 kg Samtals 126.971 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi „Dýrmæt“ þekking Íslands fyrir heiminn 97% meiri afli en í febrúar 2025 Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Gagnrýnir framkvæmd úttektar Vantaði vettvang fyrir sérfræðinga „Þetta er sukk og spilling“ Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur „Dýrmæt“ þekking Íslands fyrir heiminn 97% meiri afli en í febrúar 2025 Gagnrýnir framkvæmd úttektar 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik „Þetta er sukk og spilling“ 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Fékk nótina í skrúfuna Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Gagnrýnir framkvæmd úttektar „Þetta er sukk og spilling“ Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Fleira áhugavert Um 500 manns biðu veðrið af sér Stríðið hefur ekkert með NATO að gera Fólk úr öllum áttum fyllti hótelið Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 16.3.26 722,98 kr/kg Þorskur, slægður 16.3.26 753,03 kr/kg Ýsa, óslægð 16.3.26 427,95 kr/kg Ýsa, slægð 16.3.26 370,61 kr/kg Ufsi, óslægður 16.3.26 347,38 kr/kg Ufsi, slægður 16.3.26 384,04 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 16.3.26 246,58 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 16.3.26 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet Þorskur 4.270 kg Grásleppa 51 kg Ufsi 46 kg Skarkoli 25 kg Steinbítur 5 kg Samtals 4.397 kg 16.3.26 Fálkatindur NS 99 Grásleppunet Grásleppa 430 kg Þorskur 329 kg Skarkoli 59 kg Steinbítur 13 kg Samtals 831 kg 16.3.26 Skinney SF 20 Botnvarpa Ufsi 58.517 kg Ýsa 33.588 kg Þorskur 25.302 kg Skarkoli 3.138 kg Steinbítur 2.812 kg Langa 2.622 kg Skötuselur 242 kg Sandkoli 239 kg Þykkvalúra 215 kg Keila 84 kg Karfi 74 kg Grásleppa 72 kg Langlúra 56 kg Hlýri 10 kg Samtals 126.971 kg Skoða allar landanir »