Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þróunarsamvinna í fiskveiðistjórnun

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 2.3.2026 | 9:19 Þróunarsamvinna í fiskveiðistjórnun Fiskibátar í Indónesíu Mikilvægt er að samtvinna framþróun í fiskveiðistjórnun og vernd strandsamfélaga sem hafa lengi reitt sig á sjávarútveg. AFP/Bay Ismoyo Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tveir þriðju fiskistofna heims eru nýttir með sjálfbærum hætti og um 80% af heildarafla heimsins koma úr sjálfbærum veiðum. Hægt og bítandi eykst þó hlutfall fiskistofna sem ekki falla undir sjálfbærar veiðar. Þetta segir Stefán Ásmundsson, sérlegur ráðgjafi hjá utanríkisráðuneytinu í málefnum hafsins og fiskveiðum. Hann gegnir formennsku fyrir Íslands hönd í nefnd um fiskveiðistjórnun sem heyrir undir fiskimálanefnd Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðistjórnun (FAO). Stutt er síðan nefndin var stofnuð en fyrsti staðfundur hennar fór fram í síðustu viku í Hörpu. Frétt af mbl.is Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Blandaðar veiðar áskorun Á fundinum kenndi ýmissa grasa en megináherslan var að ræða árangursríka fiskveiðistjórnun, hvað sé hægt að læra af þeirri þekkingu sem þegar er til og hvar megi nýta hana betur. Til að mynda er rætt um veiðigetu skipaflota og hættu á ofveiði, svæðisbundna fiskveiðistjórnun og helstu áskoranir strandríkja á heitari slóðum. Víða um heim eru blandaðar veiðar ein stærsta áskorunin þegar kemur að fiskveiðistjórnun. „Við þekkjum það á Íslandi að þú færð kannski þorsk, ýsu og ufsa en þú getur nokkurn veginn gefið þér hver hlutföllin verða,“ útskýrir Stefán. „Á heitari slóðum getur verið mikill fjöldi tegunda með mjög ófyrirséðri samsetningu afla. Það er svolítið annars eðlis þegar þú færð kannski 20 tegundir sem koma í breytilegum hlutföllum.“ Hann segir að hluti af vinnu nefndarinnar felist í því að meta hvernig hægt sé að móta betri aðferðafræði við slíka fiskveiðistjórn. Einnig nefnir Stefán að mikilvægt sé að huga að því hvernig hægt sé að samtvinna framþróun í fiskveiðistjórnun og vernd strandsamfélaga sem hafa lengi reitt sig á sjávarútveg. Gæta að strandsamfélögum „Eftir því sem veiðar eru stórtækari og efnahagslega mikilvægari eru meiri líkur á að þær veiðar séu sjálfbærar,“ segir Stefán. Víða sé sjávarútvegur þó skemmra á veg kominn en til að mynda á Íslandi og í Noregi, þar sem atvinnugreinin hefur lengi gegnt veigamiklu hlutverki í atvinnulífinu. „Í öllum tilfellum, meira að segja á Íslandi, skiptir félagslegi þátturinn þó miklu máli líka, að horfa á strandsamfélög og tryggja að fiskveiðistjórnin sé með þeim hætti að samfélögin njóti ábatans af veiðunum á sínu svæði,“ útskýrir Stefán. Stefán Ásmundsson „Jafnframt að breytingar verði ekki það hraðar og miklar að þeim sem hafa hefðbundið séð verið að nota fiskistofnana verði ekki einfaldlega ýtt til hliðar af einhverri stórtækri útgerð. Það er mikilvægt að halda jafnvægi í þessu öllu saman.“ Stefán segir að á fundinum skapist vettvangur til að deila reynslu þeirra landa sem hafa náð góðum árangri í að ná þessu jafnvægi. „Útgangspunkturinn er bæði að deila reynslunni og heyra hvaða mál menn eru helst að skoða víða um heiminn,“ segir Stefán. „Jafnframt þá að skoða hvað Sameinuðu þjóðirnar geta gert, hvernig forgangsröðunin á að vera, hver nálgunin á að vera, og þá ekki síst í þeirra starfi við að styðja við þróunarríki í sinni þróun.“ Fiskveiðistjórnunarnefndin hefur verið starfandi síðan 2024 þótt þessi staðfundur hafi verið sá fyrsti en fundurinn markar jafnframt lok tveggja ára formennsku Íslands þegar honum verður slitið. Þá tekur Indland við keflinu næstu tvö árin. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Troll rígfestist í skrúfu Hvalur gerir athugasemdir við frumvarp Grásleppukarlarnir nýttir sem skiptimynt Leggja til afnám kolefnisgjalda 66 skip óhaffær eftir ógildingu skoðana Verðmætasta loðnuveiðin að bresta á Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Bátur sökk í höfninni í Tálknafirði Einn bíll sagður geta drepið 11 milljónir laxa Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Myndir: Troll rígfestist í skrúfu Grásleppukarlarnir nýttir sem skiptimynt Hvalur gerir athugasemdir við frumvarp Leggja til afnám kolefnisgjalda 66 skip óhaffær eftir ógildingu skoðana Bátur sökk í höfninni í Tálknafirði Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Verðmætasta loðnuveiðin að bresta á Útflutningsverðmæti sjávarafurða 359 milljarðar Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk 66 skip óhaffær eftir ógildingu skoðana Myndir: Troll rígfestist í skrúfu Hvalur gerir athugasemdir við frumvarp Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Bátur sökk í höfninni í Tálknafirði Leggja til afnám kolefnisgjalda Grásleppukarlarnir nýttir sem skiptimynt Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Verðmætasta loðnuveiðin að bresta á Afstaðan ljós í atkvæðagreiðslu Fleira áhugavert „Þetta er grafalvarleg staða“ Khamenei látinn Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 1.3.26 687,66 kr/kg Þorskur, slægður 1.3.26 763,30 kr/kg Ýsa, óslægð 1.3.26 370,56 kr/kg Ýsa, slægð 1.3.26 354,09 kr/kg Ufsi, óslægður 1.3.26 270,49 kr/kg Ufsi, slægður 1.3.26 394,38 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Gullkarfi 1.3.26 292,01 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.2.26 26,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 1.3.26 Bergey VE 44 Botnvarpa Ýsa 23.283 kg Þorskur 1.088 kg Þykkvalúra 364 kg Samtals 24.735 kg 1.3.26 Blíða VE 263 Landbeitt lína Langa 1.585 kg Þorskur 292 kg Ýsa 205 kg Keila 35 kg Steinbítur 28 kg Samtals 2.145 kg 1.3.26 Sæli ÍS 268 Lína Þorskur 4.131 kg Ýsa 1.995 kg Steinbítur 1.751 kg Langa 20 kg Skarkoli 19 kg Samtals 7.916 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Troll rígfestist í skrúfu Hvalur gerir athugasemdir við frumvarp Grásleppukarlarnir nýttir sem skiptimynt Leggja til afnám kolefnisgjalda 66 skip óhaffær eftir ógildingu skoðana Verðmætasta loðnuveiðin að bresta á Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Bátur sökk í höfninni í Tálknafirði Einn bíll sagður geta drepið 11 milljónir laxa Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Myndir: Troll rígfestist í skrúfu Grásleppukarlarnir nýttir sem skiptimynt Hvalur gerir athugasemdir við frumvarp Leggja til afnám kolefnisgjalda 66 skip óhaffær eftir ógildingu skoðana Bátur sökk í höfninni í Tálknafirði Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Verðmætasta loðnuveiðin að bresta á Útflutningsverðmæti sjávarafurða 359 milljarðar Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk 66 skip óhaffær eftir ógildingu skoðana Myndir: Troll rígfestist í skrúfu Hvalur gerir athugasemdir við frumvarp Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Bátur sökk í höfninni í Tálknafirði Leggja til afnám kolefnisgjalda Grásleppukarlarnir nýttir sem skiptimynt Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Verðmætasta loðnuveiðin að bresta á Afstaðan ljós í atkvæðagreiðslu Fleira áhugavert Leyfir Bandaríkjaher að nýta breskar herstöðvar Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Skipti um kyn í miðju matarboði Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 1.3.26 687,66 kr/kg Þorskur, slægður 1.3.26 763,30 kr/kg Ýsa, óslægð 1.3.26 370,56 kr/kg Ýsa, slægð 1.3.26 354,09 kr/kg Ufsi, óslægður 1.3.26 270,49 kr/kg Ufsi, slægður 1.3.26 394,38 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Gullkarfi 1.3.26 292,01 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.2.26 26,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 1.3.26 Bergey VE 44 Botnvarpa Ýsa 23.283 kg Þorskur 1.088 kg Þykkvalúra 364 kg Samtals 24.735 kg 1.3.26 Blíða VE 263 Landbeitt lína Langa 1.585 kg Þorskur 292 kg Ýsa 205 kg Keila 35 kg Steinbítur 28 kg Samtals 2.145 kg 1.3.26 Sæli ÍS 268 Lína Þorskur 4.131 kg Ýsa 1.995 kg Steinbítur 1.751 kg Langa 20 kg Skarkoli 19 kg Samtals 7.916 kg Skoða allar landanir »

Share this article