Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fiskistofa synjar Skúmi um leyfi til túnfiskveiða

Read Full Article →

Fiskistofa hefur synjað útgerðarfyrirtækinu Skúmi ehf. um leyfi til veiða á 254 tonn bláuggatúnfiskkvóta sem Alþjóðatúnfiskráðið úthlutaði til Íslands. Skúmur ehf. hefur sent formlega endurupptökubeiðni til Fiskistofu vegna málsins í samræmi við heimild í stjórnsýslulögum. Fyrirtækið telur synjunina byggða á röngum forsendum og misskilningi. Óskað er endurskoðunar á ákvörðun Fiskistofu. Skúmur ehf. hugðist veiða túnfiskinn í samstarfi við spænska útgerðar- og eldisfélagið Ricardo Fuentes e hijos. Til stóð að veiða á línu í Miðjarðarhafinu og áttu veiðarnar að hefjast í maí. Í samráði við spænska samstarfsaðilann hafði fengist leiguskip til verkefnisins sem átti að sigla undir íslenskum fána, í samræmi við ákvæði í lögum um stjórn fiskveiða. Sumarið 2022 samþykkti Alþingi nefnilega bráðabirgðaákvæði í lögum um stjórn fiskveiða sem heimilar íslenskum útgerðum að taka á leigu erlent skip til allt að sex mánaða hvert almanaksár, til veiða og vinnslu samkvæmt veiðiheimildum Íslands á austur-atlantshafsbláuggatúnfiski innan og utan íslenskrar fiskveiðilandhelgi. Á grunni þessa byggði Skúmur ehf. umsókn sína sem nú hefur verið synjað. Eftir því sem næst verður komist setur Fiskistofa það fyrir sig í umsókninni að óheimilt sé að flagga veiðiskipi undir íslenskum fána auk þess sem ekki gangi að veiða í Miðjarðarhafinu sem falli undir fiskveiðistjórnunarsvæði ESB og Ísland sé ekki með tvíhliða samning við ESB. Skúmur ehf. bendir hins vegar á að Miðjarðarhafið sé mun stærra en svo að það falli allt undir áhrif ESB. Íslensk skip hafa ekki stundað beinar veiðar á bláuggatúnfiski í að verða tíu ár. Þar sem engar veiðar hafa farið fram undanfarinn áratug er sú hætta talin fyrir hendi að kvótaúthlutanir Alþjóðatúnfiskráðsins til Íslands stöðvist og kvótinn flytjist til annarra aðildarríkja sem stunda þessar veiðar. Um það mun vera á lofti krafa nú þegar meðal annarra aðildarríkja. Einar Þór Einarsson, hjá Skúmi ehf., segir málið allt mjög bagalegt. Fyrirtækið hafi varið gríðarlegum tíma og fjármunum til undirbúnings umsókninni sem sé svo „synjað á röngum forsendum“. Ljóst er að samkvæmt ákvörðun Fiskistofu mun 254 tonna túnfiskkvóti Íslands fara til annarra aðildarríkja Alþjóðatúnfiskráðsins. Þetta veldur því einnig að ekki verður hægt að byggja upp veiðireynslu Íslendinga í túnfiski sem getur komið þjóðinni í koll ef túnfiskur fer að ganga í auknum mæli inn í íslenska lögsögu í takt við hlýnandi sjó.

Share this article