Nærri 150 sérfræðingar frá rúmlega 60 ríkjum, auk fulltrúa alþjóðastofnana og annarra hagsmunaaðila, taka nú þátt í sérfræðingafundi um fiskveiðistjórnun sem hófst í Hörpu í morgun. Fundurinn stendur til 27. febrúar. Þátttakendur starfa víða innan stjórnkerfa ríkja og hafa þannig umtalsverð áhrif á mótun stefnu og framkvæmd fiskveiðistjórnunar, bæði innan sinna landa og á vettvangi alþjóðasamstarfs. Fundurinn er formlegur vettvangur á vegum Sameinuðu þjóðanna og er hluti af starfi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðistjórnun (FAO COFI Sub-Committee on Fisheries Management). Ísland gegnir nú formennsku í þessari undirnefnd til tveggja ára en nefndin er nýstofnaður vettvangur og er ætlað að verða leiðandi alþjóðlegur umræðuvettvangur um tæknileg og stefnumótandi málefni fiskveiðistjórnunar. „Formennska Íslands felur í sér einstakt tækifæri til að leggja af mörkum til mótunar alþjóðlegrar stefnu á þessu mikilvæga sviði og til að efla samstarf við önnur ríki sem leggja áherslu á ábyrga og sjálfbæra nýtingu hafsins,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Þá gefst einnig mikilvægt tækifæri á fundinum að kynna íslenska nálgun að fiskveiðistjórnun, sem byggir á vísindalegri ráðgjöf, skýru regluverki og langtímasýn um sjálfbærni. Fundurinn styrkir einnig stöðu Íslands sem virks og áhrifamikils þátttakanda í alþjóðlegri stefnumótun í málefnum hafsins.“ Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ávarpaði fundinn í upphafi hans í dag. „Sem fyrr leggur Ísland áherslu á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs, sérstaklega í gegnum Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. FAO hefur mótað alþjóðleg viðmið um ábyrgar fiskveiðar og gegnir lykilhlutverki í gagnaöflun, samhæfingu og baráttu gegn ólöglegum veiðum,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í ávarpi sínu. „Ísland mun áfram taka virkan þátt í alþjóðlegri stefnumótun um málefni hafsins, m.a. innan ramma hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna. “ Sjá nánar hér .