Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sjávarútvegur saup seyðið af ESB-aðild

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 13.5.2026 | 19:45 Sjávarútvegur saup seyðið af ESB-aðild Hannes Hólmsteinn Gissurarson bendir á að ólíkt sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB heyri sameiginlega fiskveiðistefnan ekki undir bæði ESB og aðildarríkin, heldur fari sambandið eitt með úrslitavaldið. Morgunblaðið/Sibba/María Matthíasdóttir Setja bókamerki Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag vekur Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor athygli á því að sameiginleg fiskveiðistefna Evrópusambandsins hafi verið tekin upp „í skyndi“ árið 1973. Hafi það meðal annars verið vegna þess að þá hafi legið fyrir að von væri á aðildarumsóknum frá Bretlandi, Írlandi, Noregi og Danmörku. „Samanlagt réðu þessi ríki yfir víðáttumiklum fiskimiðum, sem ESB vildi hremma,“ bendir Hannes á. „Það samþykkti því að bæta inn í regluverk ESB nýrri reglu um jafnan aðgang aðildarþjóða að öllum fiskimiðum. Undanþágur yrðu aðeins tímabundnar.“ Bretarnir blekktir Afleiðingar þessa urðu þær að Norskir kjósendur felldu aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hið sama var þó ekki uppi á teningnum í Bretlandi enda sjávarútvegur ekki jafn veigamikið fyrir þjóðarbúið. Á þeim tíma var Edward Heath forsætisráðherra og Hannes heldur því fullum fetum fram að sá hafi ekki komið hreint fram gagnvart sjávarútveginum í landi sínu. „Edward Heath, fullvissaði þó breska fiskimenn um, að hagur þeirra yrði ekki skertur við aðild. Þegar hinar öflugu fiskveiðiþjóðir Spánverjar og Portúgalir gengu í ESB árið 1986, fengu þær hins vegar aðgang að mestallri 200 mílna fiskveiðilögsögu Breta,“ segir Hannes. „Í ljós kom, þegar skjöl voru birt árið 2001, þrjátíu árum eftir aðildarviðræðurnar, að Heath hafði mælti gegn betri vitund, blekkt breska fiskimenn.“ Írar illa sviknir Hannes bendir á að það hafi komið mörgum löndum í koll að fylgja ekki dæmi Norðmanna. Það sé ekki síst vegna þess að, ólíkt sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB, heyri sameiginlega fiskveiðistefnan ekki undir bæði ESB og aðildarríkin, heldur fari sambandið eitt með úrslitavaldið. „Írar töldu sig hafa samið um það innan ESB, kæmi til skerðingar leyfilegs heildarafla einhverra tegunda, að hlutdeild þeirra á Írlandsmiðum yrði ekki skert til jafns við hlutdeild annarra þjóða,“ rifjar Hannes upp og bendir á að í lok síðasta árs hafi ráðherraráð ESB ákveðið að fylgja vísindaráðgjöf og minnka leyfilegan heildarafla ýmissa tegunda. Írskur sjávarútvegur reiðir sig meðal annars á veiðar á makríl og kolmunna. mbl.is/Árni Sæberg Þar á meðal voru makríll og kolmunni, tegundir sem írskur sjávarútvegur reiðir sig mikð á. „En hlutdeild Íra var skert jafnt og annarra þjóða og langt niður fyrir það lágmark, sem þeir töldu sig hafa samið um,“ segir Hannes. „Það er einnig ágreiningslaust, að ESB sýndi óbilgirni í makríldeilunni við Íslendinga.“ rekur Hannes enn fremur. Makrílstofninn færðist á sínum tíma norður, meðal annars vegna loftslagsbreytinga, og þá fór hans að verða vart á Íslandsmiðum. Evrópusambandið var þó ekki á þeim buxunum að gefa eftir heimildir til íslenskra útgerða. „Íslendingar áttu með öðrum orðum að fæða makrílinn, en leyfa síðan fiskveiðiþjóðum í ESB að hirða hann,“ segir Hannes. „Hér var ESB í hlutverki bóndans, sem beitti sauðum sínum á land nágrannans, en bannaði honum nytjar af þeim. Þar eð Íslendingar eru ekki í ESB, hafa þeir þó farið sínu fram.“ Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Lækka hrefnukvóta í 134 dýr vegna villu Veiddu meiri humar en búist var við Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Kaflaskipt vetrarvertíð á enda Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Gullver verður gambísk Elisabeth Von á sjöunda og áttunda skipinu Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Veiddu meiri humar en búist var við Kaflaskipt vetrarvertíð á enda Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Gullver verður gambísk Elisabeth Von á sjöunda og áttunda skipinu Fer um miðja nótt til að sjá fyrstu bátana Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Lax á kókaíni syndir linnulaust Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Veiddu meiri humar en búist var við Fer um miðja nótt til að sjá fyrstu bátana Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði Von á sjöunda og áttunda skipinu Gullver verður gambísk Elisabeth Fleira áhugavert Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Var skárri en ekkert fyrir neytendur „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 13.5.26 622,91 kr/kg Þorskur, slægður 13.5.26 652,90 kr/kg Ýsa, óslægð 13.5.26 411,17 kr/kg Ýsa, slægð 13.5.26 401,49 kr/kg Ufsi, óslægður 13.5.26 187,57 kr/kg Ufsi, slægður 13.5.26 339,27 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 13.5.26 330,65 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 10.5.26 9,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 13.5.26 Finni NS 21 Þorskfisknet Þorskur 338 kg Ýsa 32 kg Samtals 370 kg 13.5.26 Lundi ST 11 Handfæri Þorskur 792 kg Samtals 792 kg 13.5.26 Nökkvi ÁR 101 Handfæri Þorskur 786 kg Ufsi 295 kg Samtals 1.081 kg 13.5.26 Stekkjarvík ÍS 90 Handfæri Þorskur 331 kg Samtals 331 kg 13.5.26 Guðrún GK 90 Handfæri Þorskur 555 kg Ufsi 30 kg Karfi 3 kg Samtals 588 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Lækka hrefnukvóta í 134 dýr vegna villu Veiddu meiri humar en búist var við Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Kaflaskipt vetrarvertíð á enda Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Gullver verður gambísk Elisabeth Von á sjöunda og áttunda skipinu Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Veiddu meiri humar en búist var við Kaflaskipt vetrarvertíð á enda Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Gullver verður gambísk Elisabeth Von á sjöunda og áttunda skipinu Fer um miðja nótt til að sjá fyrstu bátana Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Lax á kókaíni syndir linnulaust Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Veiddu meiri humar en búist var við Fer um miðja nótt til að sjá fyrstu bátana Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði Von á sjöunda og áttunda skipinu Gullver verður gambísk Elisabeth Fleira áhugavert Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Fólk bíður í fjögur ár eftir aðgerð Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 13.5.26 622,91 kr/kg Þorskur, slægður 13.5.26 652,90 kr/kg Ýsa, óslægð 13.5.26 411,17 kr/kg Ýsa, slægð 13.5.26 401,49 kr/kg Ufsi, óslægður 13.5.26 187,57 kr/kg Ufsi, slægður 13.5.26 339,27 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 13.5.26 330,65 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 10.5.26 9,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 13.5.26 Finni NS 21 Þorskfisknet Þorskur 338 kg Ýsa 32 kg Samtals 370 kg 13.5.26 Lundi ST 11 Handfæri Þorskur 792 kg Samtals 792 kg 13.5.26 Nökkvi ÁR 101 Handfæri Þorskur 786 kg Ufsi 295 kg Samtals 1.081 kg 13.5.26 Stekkjarvík ÍS 90 Handfæri Þorskur 331 kg Samtals 331 kg 13.5.26 Guðrún GK 90 Handfæri Þorskur 555 kg Ufsi 30 kg Karfi 3 kg Samtals 588 kg Skoða allar landanir »

Share this article