Innlent | Morgunblaðið | 18.4.2026 | 9:46 Sjávarútvegsstjórinn albúinn til viðræðna Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Costas Kadis sjávarútvegsstjóri ESB stinga saman nefjum. mbl.is/Eyþór Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Evrópusambandið er tilbúið til þess að opna sjávarútvegskaflann um leið og aðildarviðræður hefjast á ný, verði niðurstaða íslensku þjóðarinnar sú að taka upp þráðinn við þær, segir Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins (ESB). Hann vildi minna segja um hvort til stæði að breyta sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB í grundvallaratriðum, líkt og íslenskir ráðamenn hafa gefið til kynna. Var raunar fremur á honum að heyra að almenn ánægja væri með núverandi stefnu. „Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins er í endurskoðun, var síðast endurskoðuð 2023, en vegna nýrra áskorana höfum við lagst í víðtækt samráð og við vonum að niðurstöður liggi fyrir í byrjun maí.“ Hann svaraði því ekki hvort horft hefði verið til árangurs íslenska fiskveiðistjórnarkerfisins, en sagði að grundvöllur sjávarútvegsstefnu ESB hefði skilað áþreifanlegum árangri fyrir sambandið til þessa. Þetta kom fram á blaðamannafundi í gær eftir árlegan samráðsfund hans með Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra, þar sem málefni hafsins voru í brennidepli; málefni norðurslóða, sjálfbærar fiskveiðar, vísindarannsóknir og fiskeldi. Aðildarviðræður ekki hafnar Costas var afar varfærinn í tali þegar blaðamenn spurðu hann út í mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu og kvaðst ekki vilja fara út í þá sálma áður en slíkar viðræður hæfust. Hann vildi ekki svara því hvort undanþágur væru í boði, en sagði þó: „Aðildarviðræður eru raunverulegar samningaviðræður og þær eru ekki byrjaðar. En reynslan er sú að engar tvennar aðildarviðræður eru eins. Hvert umsóknarríki er metið að verðleikum og sérkennum og aðildarviðræður taka mið af því.“ Hann var beðinn að skýra orð sín nánar, en svaraði því kankvís að hann ætlaði sér ekki að semja um aðild Íslands við blaðamenn. „Aðildarviðræðurnar eru óhafnar.“ Hann var minntur á að afstaða Íslands væri sú að þær væru hafnar og stæðu yfir þótt hlé væri á þeim. „Aðildarviðræður eru ekki hafnar á ný,“ leiðrétti hann sig. „Við erum tilbúin til þess að opna sjávarútvegskaflann um leið og aðildarviðræður hefjast á ný. Við erum tilbúin.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sjávarútvegsstjórinn albúinn til viðræðna Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Aðsend grein: Nýsköpun knýr hagvöxt framtíðar Loka Hormússundi aftur Yfir 38 þúsund konur og stúlkur drepnar Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Olíuverð hríðfellur Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Réðst á leigubílstjóra X26: Tímamót í Rangárþingi eystra Allt að 10 stiga hiti Guðmundur Ingi færir sig um set Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Sjávarútvegsstjórinn albúinn til viðræðna Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Aðsend grein: Nýsköpun knýr hagvöxt framtíðar Loka Hormússundi aftur Yfir 38 þúsund konur og stúlkur drepnar Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Olíuverð hríðfellur Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Réðst á leigubílstjóra X26: Tímamót í Rangárþingi eystra Allt að 10 stiga hiti Guðmundur Ingi færir sig um set Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá