- What: EU considers granting Iceland exemptions
- Impact: Potential implications for Iceland's EU accession
Innlent | Morgunblaðið | 24.4.2026 | 10:30 Kadis sýnir á spilin hjá Evrópusambandinu Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Costas Kadis sjávarútvegsstjóri ESB. Ljósmynd/Stjórnarráðið Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ríkari réttur til kosningaþátttöku Minntist ekki á varanlegar undanþágur Orðalagið „að halda áfram“ umdeilt Veigamikið framsal ríkisvalds „Er eitthvað um að semja?“ » Fleiri tengdar fréttir Evrópusambandið gæti boðið Íslandi undanþágur frá sameiginlegu fiskveiðistefnunni til að flýta mögulegri aðild landsins að sambandinu, segir sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins (ESB) og gefur til kynna að með því aukist þrýstingur á Norðmenn til aðildar. Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri ESB sem hér var í heimsókn i liðinni viku, segir í samtali við breska viðskiptablaðið Financial Times í gær að „án efa [sé] svigrúm til sveigjanleika“ þegar sambandið endurskoðar áratugagamla sjávarútvegsstefnu sína, en ætlunin er að drög hennar liggi fyrir í maí. Hluti af viðræðunum Spurður hvort ESB væri tilbúið að veita Íslandi undanþágur segir hann: „Jájá. Það verður hluti af viðræðunum,“ segir Kadis, sem er talsvert dýpra í árinni tekið en hann gerði við íslenska fjölmiðla í síðustu viku. Þar lét hann sér nægja að undirstrika að ef aðildarviðræður hæfust að nýju yrðu það „raunverulegar samningaviðræður“, ekki aðeins viðtaka Íslands á skilyrðum ESB. Þar er þó tæplega um varanlegar undanþágur að ræða, enda væru grunnstoðir ESB þá í uppnámi, heldur tímabundna undanþágu eða aðlögun. Frétt af mbl.is Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Yfirráð fiskistofna í húfi Costas Kadis er talsvert opinskárri við Financial Times en hann var í heimsókninni hér, en á blaðamannafundi þá vildi hann engu svara um mögulegar aðildarviðræður og sagðist ekki vilja marka afstöðu áður en þær hæfust. Nú lét Kadis hins vegar í veðri vaka hvar hann sæi möguleika á málamiðlun. „Við getum fundið lausnir á álitaefnum sem reynast erfið, svo sem fyrirkomulagi um skiptingu sameiginlegra fiskistofna,“ sagði Kadis. Með því er gefið til kynna að Evrópusambandið sé til viðræðu um eitthvað eins og að staðbundnir stofnar á grunnsævi verði undir íslenskum yfirráðum en innan sjávarútvegsstefnu ESB. Deilistofnar falli hins vegar beint undir ESB, en þar ræðir um uppsjávarfisk eins og kolmunna, makríl og síld. Það kann að virðast veruleg eftirgjöf af hálfu ESB, en fyrirkomulagið yrði eftir sem áður innan sameiginlegu fiskveiðistefnunnar og háð síðari breytingum, eins og Írar komust nýverið að. Með Norðmenn í sjónmáli Fiskur kann þó að liggja undir steini í nýjum áhuga ESB á aðild Íslands, en sá fiskur heitir Noregur. Kadis sjávarútvegsstjóri bætti nefnilega við í samtali sínu við Financial Times að sveigjanlegri fiskveiðistefna gæti einnig gert aðlögun að sambandinu meira aðlaðandi fyrir „önnur lönd á sama reki“, eins og Noreg. Þar í landi skipti ágreiningur um sjávarútveg sköpum þegar Norðmenn höfnuðu aðildarsamningi í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1994, en aðildarviðræður Íslands koðnuðu niður 2012, þar sem ekki var einu sinni umræðugrundvöllur til þess að opna sjávarútvegskaflann. Íslenskir embættismenn og sendierindrekar sögðu Financial Times í skjóli nafnleyndar að án sveigjanleika í þessum efnum, sem varði eina mikilvægustu atvinnugrein Íslands, væri ESB-aðild afar ólíkleg. „Við höfum byggt sjávarútveg okkar upp eins og atvinnugrein, en innan ESB er hann enn meðhöndlaður sem byggðastefna og styrktur sem slík. Það myndi ekki ganga,“ er haft eftir ónafngreindum íslenskum embættismanni, sem þó nefndi að Grænlandsmálið kynni að milda andstöðu Íslands eitthvað. Eftir öðrum embættismanni var haft að aðild að ESB hefði fengið nýtt vægi vegna öryggishagsmuna, en bætti svo við: „Ég held að þetta verði afar, afar naumt í þjóðaratkvæðagreiðslu […] undanþága í fiskveiðum gæti sannarlega ráðið úrslitum.“ Óskiljanleg stefna Sameiginleg fiskveiðistefna ESB frá 1970 hefur sætt aukinni gagnrýni meðal aðildarríkja. Í nýlegu bréfi til Kadis, sem Financial Times hefur séð, vöruðu 12 aðildarríki, þar á meðal Þýskaland og Frakkland, við því að stjórnsýslulegt álag á greinina væri orðið svo flókið að það torveldaði daglegan rekstur. Einn sendierindreki sagði stefnuna „einstaklega flókna og gamaldags“ og bætti við: „Ég hef ekki hitt nokkurn mann í Brussel sem skilur hana til fulls.“ Óvíst er þó að hvaða marki sjávarútvegsstefnunni verður breytt, þó að reglugerðafrumskógurinn kunni að vera grisjaður. Eins og fram kom í máli Kadis við Morgunblaðið í liðinni viku er afstaða ESB að stefnan hafi reynst aðildarríkjunum gagnleg til þessa og ólíklegt að grunngerð hennar verði breytt. Orð hans við Financial Times nú eru á svipaða lund, en Kadis sagði einföldun helsta markmið endurskoðunarinnar, hún fæli í sér „nútímavæðingu og minni kolefnislosun fiskiskipaflotans“, miðaði að því að laða „yngri kynslóðina“ að greininni og uppfæra „regluverkið svo það verði einfaldara og síður íþyngjandi“. Gott og vel, en ekkert af því bendir til grundvallarbreytingar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Ríkari réttur til kosningaþátttöku Minntist ekki á varanlegar undanþágur Orðalagið „að halda áfram“ umdeilt Veigamikið framsal ríkisvalds „Er eitthvað um að semja?“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Íslandsvinurinn búinn að fá nóg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Lax á kókaíni syndir linnulaust Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Kadis sýnir á spilin hjá Evrópusambandinu Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Milljónir munu missa vinnuna Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Heimsókn konungsins muni endurreisa sambandið Minntist ekki á varanlegar undanþágur Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Ekið á konu á gangi við Skógarveg Grunuð um að hafa kveikt á blysi í íbúð „Eigum að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla frá“ Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Ríkari réttur til kosningaþátttöku Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar Nýjast á mbl.is » Íslandsvinurinn búinn að fá nóg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Lax á kókaíni syndir linnulaust Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Kadis sýnir á spilin hjá Evrópusambandinu Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Heimsókn konungsins muni endurreisa sambandið Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Ekið á konu á gangi við Skógarveg Grunuð um að hafa kveikt á blysi í íbúð „Eigum að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla frá“ Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Ríkari réttur til kosningaþátttöku Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar