- What: Former US President Donald Trump suggests Ukraine should negotiate with Russia soon.
- Impact: The statement comes before planned negotiations between Russia, Ukraine, and the US in Geneva.
Donald Trump Bandaríkjaforseti ræðir við fjölmiðla um borð í Air Force One.AP / Matt Rourke Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Úkraínumenn ættu að koma sér að samningaborðinu og semja fljótlega. Þetta sagði Trump við fréttamenn um borð í forsetaflugfélinni Air Force One á leið sinni til Washington í gær. Þessi ummæli hans koma skömmu áður en samninganefndir Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna hittast á þríhliðaviðræðum í Genf í Sviss. Viðræðurnar standa í dag þriðjudag og á morgun. Áður hafa samninganefndir landanna fundað tvisvar sinnun í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Á sunnudaginn eru fjögur ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu.