Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkjaforseti hótar hörku liggi ekki samningur á borðinu innan tíu daga

  • What: US President Donald Trump threatens Iran with unspecified consequences if a nuclear agreement is not reached within ten days.
  • Impact: The statement has raised concerns about potential military conflict.
Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írani þurfa að komast að samkomulagi sem hald er í um kjarnorkumál á næstu tíu dögum, ella muni eitthvað illt henda þá. Donald Trump sagði á stofnfundi Friðarráðsins í dag að það hefði sýnt sig gegnum árin að erfitt væri að ná samkomulagi við Íran. Þarlendir ráðamenn segja í bréfi til Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, orð Trumps skapa raunverulega hættu á hernaði, þeir vilji hvorki auka á spennu milli ríkjanna né fara í stríð. Stjórnin ætli heldur ekki að hafa frumkvæði að átökum en muni svara árásum af fullri hörku. Skömmu áður hafði ísraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú varað klerkastjórnina við afleiðingum árása á Ísrael. „Viðbrögðin verða harðari en þeir geta ímyndað sér,“ sagði Netanjahú. Bandarískir miðlar sögðu í gær að herinn væri reiðubúinn til þungrar atlögu að Íran með það markmið að fella klerkastjórnina og enn fjölgar bandarískum herskipum umhverfis landið.

Share this article