Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

25 manns sagt upp í fiskvinnslu

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 12.3.2026 | 15:51 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Ástæður þess að fiskvinnslur sem kaupa af markaði hafa minni aðgang að hráefni einskorðast ekki við gámaútflutning erlendis á heilum fiski, að mati eiganda fiskvinnslu í Keflavík og Sandgerði. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki 25 manns hefur verið sagt upp síðustu tvo mánuði hjá fiskvinnslufyrirtækinu Erik the Red Seafood. Um hundrað manns störfuðu hjá fyrirtækinu í Keflavík og Sandgerði og er því um fjórðung starfsmanna að ræða. Fiskifréttir sögðu fyrst frá. Ketill Helgason eigandi fyrirtækisins staðfestir þetta í samtali við 200 mílur og segist jafnframt ekki geta útilokað frekari uppsagnir síðar meir. Það fari þó töluvert eftir ástandi á hráefnismarkaði. Ekki aðeins samkeppni við erlendar vinnslur Erik the Red Seafood er ein þeirra fiskvinnsla sem kaupa fisk af markaði en eru ekki með eigin kvóta en þeim hefur fækkað á umliðnum árum. „Við erum svona fimm eða sex innlendar vinnslur sem ekki eru með eigin kvóta og eru þokkalega öflugar í að kaupa fisk á markaðnum,“ segir Ketill. „Svo eru einhverjar smærri vinnslur en við erum kannski fimm eða sex sem kaupum meira en tvö þúsund tonn á ári.“ Lengi hefur það verið til umræðu að vinnslur sem kaupa fisk af markaði eigi í vök að verjast og verður mönnum tíðrætt um aukinn útflutning á heilum fiski sem fer í vinnslu erlendis. Aðspurður hvort honum þyki róðurinn hafa þyngst undanfarið jánkar Ketill því. „En það er ekki aðeins samkeppnin við erlend fyrirtæki, það er líka samkeppni við sterku kvótafyrirtækin. Það sem hefur gerst undanfarin ár er að þeim fækkar og fækkar, bátunum sem eru að landa á fiskmarkaði,“ segir Ketill. Frétt af mbl.is Útflutningur ógnar góðu orðspori „Það sem hefur verið rosalega kröftugt í að keyra fiskmarkaðinn áfram eru til dæmis snurvoðarbátarnir á Snæfellsnesi. Þeir hafa alltaf verið að landa á markaði. Nú eru sterk kvótafyrirtæki búin að kaupa upp mikið af þessum bátum,“ útskýrir Ketill og segir að sér reiknist til að aðeins örfáir bátar séu eftir í kringum landið sem séu enn þá í sjálfstæðri eigu. „Ég held að þetta séu um það bil 15-20 bátar í stóra kerfinu og kannski 15-20 bátar í litla kerfinu sem eru að landa á markaði.“ Auk þeirra séu síðan strandveiðibátarnir. Þríþætt vandamál Ketill bætir því við að ekki aðeins séu útgerðir að kaupa upp báta, heldur snúi vandamálið einnig að því að útgerðir geri samninga við báta og útvegi þeim aukinn kvóta á móti. „Ég myndi til dæmis segja að eftir að það kom nýr forstjóri hjá Samherja séu öðruvísi áherslur þar. Þeir hafa verið að gera samninga við báta sem hafa verið að landa á markaði,“ útskýrir Ketill. „Það þýðir að þessi fiskur sem þeir hafa verið að koma með á markaðinn er ekki að koma á markað lengur.“ Ketill Helgason Ketill segir fleiri stærri kvótafyrirtæki gera slíkt hið sama en tekur fram að hann sé ekki að gagnrýna þau sérstaklega. „Ég er ekki að hrauna yfir neinn og sé enga ástæðu til þess,“ útskýrir hann. „Það hafa allir rétt á að gera eitthvað við sinn kvóta en eftir situr að þessi kvóti er ekki lengur að koma inn á markaðinn.” Ketill áréttar þó að ekki megi gera lítið úr því hversu mikið sé flutt úr landi. „Ef þú ert með tugþúsundir tonna sem eru flutt út af óunnum fiski er það vandamál en það er ekki eina vandamálið.“ Í stuttu máli sagt eru ástæður þess að fiskvinnslur sem kaupa af markaði hafa minni aðgang að hráefni þríþættar að mati Ketils. „Það er sem sagt útflutningur á hráefni, það er samþjöppun í útgerðinni og svo eru kvótafyrirtækin að lokka til sín báta sem eru að landa á markaði,“ segir hann. Það hafi afleiðingar á borð við þær að fiskvinnsla þurfi að segja upp fjórðungi starfsfólks. Ketill segist hafa áhyggjur af því að fiskvinnslur sem kaupa fisk af markaði hverfi ef þróunin heldur áfram. „Þetta verður bara meira og meira mál fyrir alla þá sem reiða sig á markaðinn,“ segir Ketill að lokum. Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er sukk og spilling“ Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Vertíð gæti skilað 30 milljörðum Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Útflutningur ógnar góðu orðspori Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori „Þetta er sukk og spilling“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Fleira áhugavert Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.3.26 703,12 kr/kg Þorskur, slægður 12.3.26 648,34 kr/kg Ýsa, óslægð 12.3.26 389,50 kr/kg Ýsa, slægð 12.3.26 395,21 kr/kg Ufsi, óslægður 12.3.26 352,07 kr/kg Ufsi, slægður 12.3.26 403,67 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 12.3.26 330,04 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 12.3.26 Fjølnir GK 757 Lína Þorskur 5.882 kg Langa 1.675 kg Ýsa 1.616 kg Samtals 9.173 kg 12.3.26 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet Þorskur 4.290 kg Grásleppa 184 kg Skarkoli 30 kg Ufsi 19 kg Samtals 4.523 kg 12.3.26 Gunnþór ÞH 75 Þorskfisknet Þorskur 4.070 kg Grásleppa 163 kg Ufsi 31 kg Skarkoli 27 kg Ýsa 5 kg Samtals 4.296 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er sukk og spilling“ Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Vertíð gæti skilað 30 milljörðum Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Útflutningur ógnar góðu orðspori Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori „Þetta er sukk og spilling“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Fleira áhugavert Borga ekki umferðarsektir Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.3.26 703,12 kr/kg Þorskur, slægður 12.3.26 648,34 kr/kg Ýsa, óslægð 12.3.26 389,50 kr/kg Ýsa, slægð 12.3.26 395,21 kr/kg Ufsi, óslægður 12.3.26 352,07 kr/kg Ufsi, slægður 12.3.26 403,67 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 12.3.26 330,04 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 12.3.26 Fjølnir GK 757 Lína Þorskur 5.882 kg Langa 1.675 kg Ýsa 1.616 kg Samtals 9.173 kg 12.3.26 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet Þorskur 4.290 kg Grásleppa 184 kg Skarkoli 30 kg Ufsi 19 kg Samtals 4.523 kg 12.3.26 Gunnþór ÞH 75 Þorskfisknet Þorskur 4.070 kg Grásleppa 163 kg Ufsi 31 kg Skarkoli 27 kg Ýsa 5 kg Samtals 4.296 kg Skoða allar landanir »

Share this article