200 mílur | Morgunblaðið | 10.3.2026 | 9:13 Hagnaði og orðspori ógnað af útflutningi „Útgerðarmenn setja fiskinn til sölu á fiskmarkaði í góðri trú um að íslenska fiskvinnslan kaupi hann en svo endar hann í gámum og fer á erlenda markaði.“ mbl.is/Sigurður Bogi Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Útflutningur á fiski til vinnslu erlendis er vandamál sem hefur vaxið ört í seinni tíð. Íslenskum fiskvinnslum sem ekki eru með kvóta heldur kaupa fisk af markaði hefur fækkað, störfin fjúka með og hagnaður sem ætti að skila sér í þjóðarbúið flæðir úr landi. Þá gæti þróunin haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir orðspor íslenskra sjávarafurða. Þetta segir Gunnar Örlygsson, forstjóri sjávarafurðafyrirtækisins IceMar, en hann hefur lengi talað fyrir því að vinnsluskyldu verði komið á íslenskar bolfisktegundir á borð við þorsk og ýsu. Hann segir að nú sé rétti tíminn til að grípa til aðgerða. Greið leið fyrir erlenda kaupendur „Hér áður fyrr voru þetta útgerðir sem voru að flytja fiskinn beint út. Svo hefur þetta verið að þróast þannig að örugglega meira en helmingurinn af öllum fiski sem fer óunninn út á markaðinn núna kemur í gegnum fiskmarkaði,“ segir Gunnar og útskýrir að þar af leiðandi sé flókið að koma á útflutningsálagi til að sporna við þróuninni. „Útgerðarmenn setja fiskinn til sölu á fiskmarkaði í góðri trú um að íslenska fiskvinnslan kaupi hann en svo endar hann í gámum og fer á erlenda markaði.“ Gunnar bendir einnig á að erlendir kaupendur eigi greiða leið að fiskmörkuðum og þurfi ekki kennitölu til, þeir fái einfaldlega kaupendanúmer og kaupi beint af markaði. Vegna ríkisstyrkja til fiskvinnslu og lægri launa, bæði í Evrópu og víðar, geti íslenskar fiskvinnslur illa keppt við þær erlendu. „Þetta er orðið þannig að framlegð hjá sjálfstæðum fiskvinnslum sem eru ekki með eigin útgerð er bara farin,“ segir hann. Frétt af mbl.is Innlend fiskvinnsla skapar verðmæti Ógnar ímyndarsköpun Ein helsta ógnin sem fylgir þessari þróun snýr að mati Gunnars að ímynd íslenskra sjávarafurða. Hann segir eftirliti víða erlendis vera ábótavant og að það samræmist ekki þeim verkferlum sem viðhafðir eru hér á landi og tryggja gæði vörunnar. „Sum þessara fyrirtækja eru mjög flott og eru með glæsilegar vinnslur en ég hef líka rekist á vinnslur erlendis sem kaupa íslenskan fisk og þar eru ýmsir ágallar. Ég myndi ekki vilja borða mat sem kæmi frá þeim,“ segir Gunnar. Þá er ljóst að afurðirnar rata ekki jafn ferskar til erlendrar vinnslu og ef þær væru unnar á Íslandi þar sem fiskinum er landað. Engu að síður er fiskur frá þessum erlendu fyrirtækjum seldur sem íslensk afurð rétt eins og sá sem fer í gegnum vinnslu hér á landi. „Það er mjög slæmt fyrir ímynd íslensks sjávarfangs.“ Gunnar Örlygsson kallar eftir vinnsluskyldu í bolfiski en hann vill byrja á þorski og ýsu og smám saman bæta við fleiri tegundum. Ljósmynd/Aðsend Vörumerkjavernd á bolfisk Nýlega sögðu Fiskifréttir frá því að Jens Garðar Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins hygðist leggja fram þingsályktunartillögu um að ákveðnar bolfiskafurðir hljóti vörumerkjavernd sambærilega því sem þekkist með franska kampavínið og gríska fetaostinn og því fagnar Gunnar. „Mér finnst þetta alveg frábær nálgun. Þá yrði sett vinnsluskylda á þorsk og ýsu og svo kæmu kannski aðrar tegundir í áföngum.“ Ef svo færi að tilteknar bolfisktegundir hlytu vörumerkjavernd myndi það óhjákvæmilega kalla á að allur aflinn færi í gegnum virðiskeðjuna hér á landi, en gætu íslenskar vinnslur tekið við því umframmagni sem hingað til hefur farið utan? Gunnar telur engan vafa á því. „Vinnslugetan í þorski og ýsu er mjög mikil, sérstaklega út af þeirri tækniþróun sem hefur átt sér stað, t.d. með vatnsskurðarvélum Marels. Við getum tekið þetta á kassann núna, þessi 30 þúsund tonn af þorski og ýsu,“ segir Gunnar. „Ég veit að verksmiðjan hjá Samherja á Dalvík gæti bætt við sig fimm þúsund tonnum. Verksmiðja okkar í Sandgerði [AG Seafood] getur bætt við sig tvö þúsund tonnum. Þetta eru bara tvö fyrirtæki með sjö þúsund tonn.“ Gunnar telur að smám saman yrði hægt að útvíkka vinnsluskylduna og bæta fleiri tegundum við í áföngum. „Til að mynda er karfinn drjúgur í útflutningi og óunninn. Við værum ekki tilbúin að taka hann allan strax í vinnslu svo best væri að skella ekki vinnsluskyldu á hann strax heldur vera með aðlögunarferli.“ Seinna segir Gunnar að hægt væri að bæta við tegundum sem eru enn þá sérhæfðari í vinnslu, eins og steinbít og skarkola. Frétt af mbl.is Vill greina áhrif af vinnsluskyldu Samstaða sem aldrei fyrr Gunnar segir umræðu um vinnsluskyldu fá meiri meðbyr þessi dægrin og að fyrirtæki sjái nú hag í því að styðja betur við innlenda vinnslu. Markaðssjónarmið um ímyndarsköpun vegi þungt í þeim efnum. Ásókn erlendra fyrirtækja á íslenskan markað sé að aukast, meðal annars vegna þess hversu mikill samdráttur hefur víða orðið í þorskveiði, ekki síst í Barentshafi, og nú sé breiðari pólitísk samstaða um málið. Gunnar segist ekki aðeins ánægður með útspil Jens Garðars, heldur einnig með Hönnu Katrínu Friðriksson. „Hún er fyrsti ráðherra málaflokksins sem sýnir þessu áhuga og ég veit að hún er að skoða hvaða leið á að fara í þessu máli,“ segir Gunnar vongóður að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Farþegamiðstöðin komin með nafn Fisk rekur á land á Stokkseyri „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Litið til Íslands í uppbyggingu „Það er fiskur úti um allt núna“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Verðmætur túr hjá Sólbergi Biðstaða í loðnuveiðunum og bræluspá fram undan Farþegamiðstöðin komin með nafn 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Fisk rekur á land á Stokkseyri „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ „Það er fiskur úti um allt núna“ Litið til Íslands í uppbyggingu Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Verðmætur túr hjá Sólbergi Methiti mældist í sjó við Ísland Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Tífalt dýrari en lax Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Fleira áhugavert Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Vilja rannsókn á snjóflóðunum Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 9.3.26 663,07 kr/kg Þorskur, slægður 9.3.26 584,88 kr/kg Ýsa, óslægð 9.3.26 416,00 kr/kg Ýsa, slægð 9.3.26 402,19 kr/kg Ufsi, óslægður 9.3.26 337,38 kr/kg Ufsi, slægður 9.3.26 384,20 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 6.3.26 238,00 kr/kg Gullkarfi 9.3.26 286,04 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 9.3.26 Ásdís ÍS 2 Dragnót Skarkoli 1.497 kg Ýsa 1.187 kg Steinbítur 391 kg Þorskur 203 kg Sandkoli 34 kg Þykkvalúra 13 kg Grásleppa 13 kg Samtals 3.338 kg 9.3.26 Einar Guðnason ÍS 303 Lína Þorskur 6.597 kg Steinbítur 5.817 kg Ýsa 2.315 kg Skarkoli 48 kg Samtals 14.777 kg 9.3.26 Hafrafell SU 65 Lína Ýsa 2.426 kg Þorskur 1.102 kg Keila 77 kg Hlýri 38 kg Steinbítur 36 kg Karfi 2 kg Samtals 3.681 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Farþegamiðstöðin komin með nafn Fisk rekur á land á Stokkseyri „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Litið til Íslands í uppbyggingu „Það er fiskur úti um allt núna“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Verðmætur túr hjá Sólbergi Biðstaða í loðnuveiðunum og bræluspá fram undan Farþegamiðstöðin komin með nafn 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Fisk rekur á land á Stokkseyri „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ „Það er fiskur úti um allt núna“ Litið til Íslands í uppbyggingu Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Verðmætur túr hjá Sólbergi Methiti mældist í sjó við Ísland Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Tífalt dýrari en lax Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Fleira áhugavert Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB „Ekkert í gangi sem bendir til þess að það styttist í gos“ Verið er að búa til hærra gólf fyrir hækkun bóta Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 9.3.26 663,07 kr/kg Þorskur, slægður 9.3.26 584,88 kr/kg Ýsa, óslægð 9.3.26 416,00 kr/kg Ýsa, slægð 9.3.26 402,19 kr/kg Ufsi, óslægður 9.3.26 337,38 kr/kg Ufsi, slægður 9.3.26 384,20 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 6.3.26 238,00 kr/kg Gullkarfi 9.3.26 286,04 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 9.3.26 Ásdís ÍS 2 Dragnót Skarkoli 1.497 kg Ýsa 1.187 kg Steinbítur 391 kg Þorskur 203 kg Sandkoli 34 kg Þykk