Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þingsályktun um vörumerkjavernd íslensks fisks

Read Full Article →

Jens Garðar Helgason, alþingismaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar á næstu dögum að leggja fram þingsályktunartillögu sem miðar að því vörumerkjavernd fyrir íslenskan bolfisk. „Verðmætasta vörumerkið sem við Íslendingar eigum er íslenskur fiskur og þá sérstaklega íslenskur þorskur. Staðan er sú að flutt eru út tugir þúsunda tonna á hverju ári af óunnum fiski sem eru síðan unnin í vinnslum í Hollandi, Litháen eða Póllandi, þá orðinn gamalt hráefni, en seldur sem ferskur íslenskur fiskur og merktur sem slíkur. Mín nálgun helgast af því að með óbreyttu ástandi gætum við ógnað þeirri stöðu sem íslenskur fiskur hefur haft á erlendum mörkuðum sem fersk og góð hágæðavara. Með því að vera með algjörlega stjórnlausan útflutning á óunnum fiski ógnum við vörumerkinu sem við höfum byggt upp.“ Mörg þekkt dæmi eru um að þjóðir hafi gripið til vörumerkjaverndar af þessu tagi eins og birtist til dæmis í osti sem seldur var hér á landi sem fetaostur en með vörumerkjavernd grískra framleiðenda þurfti að breyta nafninu hér í salatost. „Allar þjóðir sem eiga mikilvæga og sérstaka vöru sem er einkennandi fyrir landið sitt verja sínar vörur með einhverjum hætti. Það getur verið parmaskinka, kampavín eða koníak sem er bundið við ákveðið svæði eða lönd.“ Jens segir að hin hlið málsins sé sú að innlendar fiskvinnslur, sem reyni að bjóða í fisk á fiskmörkuðum, búi við mjög ójafna samkeppnisstöðu. Evrópskar vinnslur, sem njóti niðurgreiðslna frá Evrópusambandinu, hafi óheftan aðgang að fiskmörkuðum á Íslandi og njóta vinnuafls sem er á 20% til 30% lægri launum en greidd eru fiskverkafólki á Íslandi. Hann segir að þetta sé ójafn leikur. „Ég heyri það hjá forsvarsmönnum margra fiskvinnslna á Íslandi hve ójafn þessi leikur er og hve skökk samkeppnisstaðan sé.“ Jens segir að nú eigi sér stað vakning hvað þetta varðar. Á árum áður hafi tíðkast útflutningur á óunnum fiski til afmarkaðra kaupenda og í mun minni mæli en tíðkast hefur á undanförnum árum. „Þetta er orðið allt annað umhverfi og veruleiki sem við búum við í dag sem er farinn að ógna vörumerkinu,“ segir Jens.

Share this article