Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fimmtungi sagt upp hjá Erik The Red

Read Full Article →

Ketill Helgason, eigandi fiskvinnslunnar Erik The Red Seafood í Keflavík, segist hafa sagt upp um fimmtungi starfsmanna vegna hráefnisskorts á sama tíma og útflutningur á óunnum fiski haldi áfram að aukast. Sjálfur hefur Ketill um árabil bent á að huga þurfa að því að tryggja betur að fiskur sé ekki fluttur fyrirvaralaust óunninn úr landi í svo stórum stíl. „Það hefur ekkert breyst,“ segir hann um þróunina í þessum efnum. Ekkert meira heyrst frá ráðuneytinu Hanna Katrín Friðriksson atvinuvegaráðherra sagði í Fiskifréttum í nóvember að málið væri til skoðunar í ráðuneytinu. „Ráðherra sagði opinberlega á einhverju sjávarútvegsþingi að þetta væri mjög varhugaverð þróun og að þetta væri til skoðunar. Þetta var einhvern tíma á síðasta ári og ég hef ekkert heyrt meira af því frá þeim,“ segir Ketill. Ímyndin að skemmast Jens Garðar Helgason, alþingismaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, boðaði nýlega þingsályktunartillögu um vörumerkjavernd fyrir íslenskan bolfisk. „Staðan er sú að fluttir eru út tugir þúsunda tonna á hverju ári af óunnum fiski sem er síðan unninn í vinnslum í Hollandi, Litháen eða Póllandi, þá orðinn gamalt hráefni, en seldur sem ferskur íslenskur fiskur og merktur sem slíkur,“ sagði Jens Garðar í Fiskifréttum í síðustu viku. Með „algjörlega stjórnlausum“ útflutningi á óunnum fiski væri vörumerkinu sem byggt hefði verið upp ógnað. Sjálfstæðum fækki „Þetta er bara sama sýn og ég kom fram með í viðtali hjá ykkur fyrir mörgum árum. Þetta væri að skemma ímyndina á fiskinum,“ segir Ketill. Spurður hvort málið þoli mikla bið í ljósi hinnar hröðu þróunar segir Ketill það svo sem ábyggilega þola alla bið í heiminum. „Það eina sem gerist er að það fækkar kannski nokkrum fiskverkendum hérna á landinu sem eru sjálfstæðir. Þannig lagað getur það beðið,“ segir Ketill, sem kveðst hafa þurft að draga saman seglin. „Menn eru orðnir vanir þessum háu verðum“ „Við höfum sagt upp fólki, kannski einum fimmta af hópnum,“ segir Ketill. Þetta hafi verið í kringum tuttugu manns. „Það er bæði orðið minna af hráefni á mörkuðunum og það er orðið mjög dýrt. Það er ekki grundvöllur fyrir því að halda áfram með sumt af því sem við vorum að gera.“ Varðandi markaði ytra, meðal annars í ljósi tolla í Bandaríkjunum, segir Ketill að í fyrra hafi verið dálitlar sviptingar. „En þetta er að ná að jafna sig aðeins, menn eru orðnir vanir þessum háu verðum,“ segir hann. Ekki allt á neytendur Tíu prósenta tollur er nú á innflutning héðan til Bandaríkjanna og kemur hann ofan á hækkandi verð héðan og lækkandi dollara. „Þetta er hækkun á hráefni, þetta er hækkun á afurðaverði út af lækkun á dollaranum og svo kemur tíu prósenta tollur ofan á það allt saman,“ segir Ketill um stöðuna. Fyrir verslanir vestan hafs segir Ketill þetta hafa haft í för með sér á bilinu fjörutíu til áttatíu prósenta hækkun eftir því um hvaða vöru væri að ræða. Þessum hækkunum hafi verslanirnar ekki getað í öllum tilfellum velt yfir á neytandann. „Þær hafa hækkað mjög mikið en ég veit að í mörgum tilfellum hafa þær ekki getað tekið alla hækkunina og sett hana út í verðlagið og hafa tekið eitthvað á sjálfar sig.“ Útflutninginn til Bandaríkjanna segir Ketill nú vera miklu minni en hann hafi verið. „Það er bara minna af fiski og þá minnkar markaðurinn,“ bendir hann á. Þetta eigi við um alla, Ísland, Noreg og aðra fiskútflytjendur. Afar tvíbent sverð„Er það ekki bara helvíti góð hugmynd?“ spyr Ketill á móti spurður hvort hann telji að taka ætti upp vinnsluskyldu til að vernda íslenska fiskinn sem vörumerki. Hann viti þó ekki hver besta leiðin sé. Afar tvíbent sverð „Þetta er afar tvíbent sverð allan hringinn þannig að það þarf að vanda vel til verka,“ segir Ketill. Í þessu séu engar auðveldar leiðir. „Svo eru ábyggilega einhverjir konfliktar við Evrópusambandið. Ég þekki það ekki nógu vel. Það er ábyggilega það sem hún er að eltast við, hún Hanna Katrín. Þetta er ekki einfalt en ég sá það í fréttum hjá ykkur sem hann Jens Garðar var að segja og þetta er bara staðan.“

Share this article