Fimmtungi starfsmanna fiskvinnslunnar Erik The Red Seafood í Keflavík hefur verið sagt upp vegna minna framboðs af hráefni og hækkunar á fiskverði, að sögn Ketils Helgasonar, eiganda fyrirtækisins. Hann segir í samtali við Fiskifréttir Viðskiptablaðsins uppsagnirnar nema um tuttugu manns og að draga hafi þurft saman seglin þar sem „ekki er grundvöllur fyrir því að halda áfram með sumt af því sem við vorum að gera“. Ketill tengir stöðuna meðal annars við það að útflutningur á óunnum fiski haldi áfram að aukast á sama tíma og hráefni til innlendrar vinnslu er af skornum skammti. Hann segir að hann hafi um árabil bent á að tryggja þurfi betur að fiskur sé ekki fluttur út óunninn í svo stórum stíl, en að lítið hafi gerst í málinu. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hafi í nóvember sagt í Fiskifréttum að málið væri til skoðunar í ráðuneytinu en Ketill segist ekki hafa heyrt frekar af framhaldinu. Á sama tíma hefur Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, boðað þingsályktunartillögu um vörumerkjavernd fyrir íslenskan bolfisk og varað við að „stjórnlaus“ útflutningur á óunnum fiski geti grafið undan ímyndinni þegar hráefnið er unnið erlendis og selt sem ferskur íslenskur fiskur. Ketill bendir einnig á að aðstæður á mörkuðum hafi verið krefjandi, meðal annars vegna hækkandi verðlags, veikrar dollarastöðu og 10% tolla á innflutning til Bandaríkjanna. Hann segir að fyrir verslanir vestanhafs hafi þetta í sumum tilvikum þýtt 40–80% verðhækkun eftir vöruflokkum, en að ekki hafi alltaf verið hægt að velta hækkununum að fullu út í smásöluverð.