Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skoða gjaldtöku á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu

Read Full Article →

Til skoðunar er að hefja gjaldtöku á ný við Hvalfjarðargöng og taka upp veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til að fjármagna innviðafélag sem ríkisstjórnin ætlar að koma á laggirnar. Þetta kemur fram í greinargerð frumvarps fjármála- og efnahagsráðherra sem útbýtt var á Alþingi í gær. Innviðafélaginu er ætlað að standa straum af uppbyggingu meiriháttar samgönguinnviða og eru Ölfusárbrú, Fljótagöng og Sundabraut sérstaklega nefnd í greinargerð frumvarpsins. Gert er ráð fyrir því að við stofnun félagsins verði allt hlutafé í eigu ríkissjóðs en opnað er á það í frumvarpinu að fjárfestar geti keypt sig inn í það seinna meir. Ríkissjóður muni þó alltaf eiga ráðandi hlut, annað hvort að meirihluta eða þriðjungshluta með neitunarvaldi. Er horft til þess að fagfjárfestar með viðeigandi þekkingu geti keypt hluti í félaginu án þess að þeir séu skilgreindir nánar. Í frumvarpinu er að finna heimild til að gera innviðafélaginu kleift að innheimta veggjöld fyrir notkun samgöngumannvirkja. Í greinargerðinni er ljóst að það á ekki bara við um þau mannvirki sem innviðafélagið byggir heldur einnig mannvirki sem þegar hafa verið byggð og stendur til að færa inn í félagið. Nokkur mannvirki eru þar nefnd. Til skoðunar hefur verið að setja Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót inn í félagið en þar er nú þegar verið að innheimta veggjöld. Þá gerir áætlun ráð fyrir að Hvalfjarðargöng verði færð inn í félagið og innheimta veggjalda þar hefjist að nýju árið 2028. Á sama tíma verði tvöföldun ganganna sett í forgang þar sem framkvæmdir myndu hefjast árið 2030. Verði sú leið farin myndi ríkið þurfa að leggja félaginu til 27 milljarða, en án gjaldtöku þyrfti ríkið að leggja fram 75 milljarða. Enn fremur segir í greinargerðinni: „Mögulegt er að skoða fleiri þegar byggð mannvirki í þessu samhengi, til að mynda Reykjanesbraut og Suðurlandsveg, en með slíkum aðgerðum væri innheimta veggjalda á öllum helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu sem í fælist ákveðin sanngirni þar sem byrðum yrði dreift á vegfarendur hvar sem þeir byggju eða störfuðu.“

Share this article