Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Enn eitt högg fyrir litlar byggðir

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 17.3.2026 | 15:28 Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Mikael segir fiskvinnsluna Drang og útgerðarfélagið Skúla á Drangsnesi skapa um helming heilsársstarfa í sveitarfélaginu. Ljósmynd/Aðsend Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Nái frumvarp Eyjólfs Ármanssonar um afnám línuívilnunar og skel- og rækjubóta fram að ganga mun það hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir lítil samfélög á landsbyggðinni. Þetta segir Mikael Rafn Línberg Steingrímsson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Skúla og fiskvinnslunnar Drangs á Drangsnesi. Drangsnes á Ströndum er meðal þeirra byggða sem reiða sig að miklu leyti á þá atvinnusköpun sem fylgir litlum eða meðalstórum útgerðum og fiskvinnslu á staðnum. Frétt af mbl.is Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Hver hindrunin á fætur annarri „Þetta er enn eitt höggið fyrir okkar samfélag,“ segir Mikael. Hann tekur að þylja upp vörður í því hindrunarhlaupi sem fyrirtæki á borð við Skúla og Drang hafa tekist á við undangengin tvö ár. Mikael Rafn Steingrímsson er framkvæmdastjóri Skúla og Drangs. „Það er hækkað veiðigjald og hækkað kolefnisgjald. Það er hækkaður flutningskostnaður vegna kílómetragjalds og við erum nú ekki í alfaraleið hér. Svo er samdráttur í þorski, mikill samdráttur í grásleppu og virðist stefna í enn meiri samdrátt þó að lokaráðgjöf sé ekki komin. Svo er auðvitað pólitísk óvissa í grásleppunni líka,“ segir Mikael en þar með er upptalningunni þó ekki lokið og nefnir hann einnig samdrátt í línuívilnun og skelja- og rækjubótum sem nú stendur til að leggja alfarið niður, sem og skerðingar í almenna byggðakvótanum. „Þar hefur mikið dregist saman í þorski og bæst við í ýsu, en það hentar ekki öllum,“ bætir Mikael við. Einnig nefnir hann niðurfellingu á lögum um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks sem tók gildi í lok árs 2024. „Það þýðir að litlar vinnslur geta ekki sótt í styrki í löngum brælum eins og við erum akkúrat að upplifa núna,“ segir hann. Verði frumvarpið að lögum sé það með öðrum orðum enn eitt áfallið sem dragi litlar útgerðir niður. Afleiðingin er sú að útgerðir muni sjá sig tilneyddar til að endurskoða rekstrarform sitt, að sögn Mikaels. Lengi staðið til að stokka upp í kerfinu „Fyrir útgerðirnar sem eru hérna á Drangsnesi, til dæmis, þá eru línuívilnun og skel- og rækjubætur um og yfir 10% af lönduðum bolfiskafla útgerðanna og hérna á Ströndum vinna 15 manns við beitningu í landi,“ útskýrir Mikael en honum reiknast til að Skúli og Drangur standi fyrir um helmingi heilsársstarfa í þessu litla sveitarfélagi. Fleiri staðir á landinu séu í svipaðri stöðu. „Þessar aðgerðir eru bara virkilega slæmar fyrir litlar vinnsluútgerðir í litlum samfélögum úti um allt land.“ Frétt af mbl.is Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Mikael segir að fréttirnar hafi að vissu leyti ekki komið á óvart, en innviðaráðherra hafi frá upphafi sagst ætla að stokka upp í 5,3% kerfinu, byggðakerfinu svonefnda, og efla byggð um land allt. „En eru auknar strandveiðar og skerðingar á öðrum aðgerðum það eina sem á að ráðast í?“ spyr hann. „Hvað þá með okkur hin sem erum að reyna að halda úti atvinnu allt árið um kring í litlu samfélögunum sem eiga allt sitt undir því að nýta auðlindirnar í sínu nærumhverfi?“ Taka lán frá framtíðinni Aðspurður hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur af því að störf muni tapast segir Mikael að vel geti komið til þess. „Það segir sig sjálft að ef það á að draga saman allan kvóta, skerða litlu útgerðirnar sem standa fyrir mörgum heilsársstörfum, þá veikir það rekstrargrundvöllinn,“ áréttar hann og segir ráðherra skapa skelfilegt fordæmi með því að færa til leyfilegt aflamark á þennan hátt. „Með þessu frumvarpi er verið að taka lán frá framtíðinni til að redda málum fyrir strandveiðar í sumar,“ segir Mikael að lokum. „Ég veit ekki hvernig þau ætla að borga það til baka.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Unnið úr síðustu loðnuförmunum Vantaði vettvang fyrir sérfræðinga Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi „Dýrmæt“ þekking Íslands fyrir heiminn 97% meiri afli en í febrúar 2025 „Þetta er sukk og spilling“ Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur „Dýrmæt“ þekking Íslands fyrir heiminn 97% meiri afli en í febrúar 2025 Gagnrýnir framkvæmd úttektar 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik „Þetta er sukk og spilling“ 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Fékk nótina í skrúfuna Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Þetta er sukk og spilling“ Gagnrýnir framkvæmd úttektar Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Fleira áhugavert Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið Fannst nakin og örend í snjóskafli Segjast hafa drepið Larijani Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 17.3.26 740,93 kr/kg Þorskur, slægður 17.3.26 677,95 kr/kg Ýsa, óslægð 17.3.26 557,26 kr/kg Ýsa, slægð 17.3.26 435,17 kr/kg Ufsi, óslægður 17.3.26 350,53 kr/kg Ufsi, slægður 17.3.26 413,15 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 17.3.26 259,30 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 17.3.26 Auður Vésteins SU 88 Lína Þorskur 101 kg Ýsa 43 kg Keila 20 kg Langa 9 kg Samtals 173 kg 17.3.26 Litlanes ÞH 3 Línutrekt Ýsa 1.601 kg Þorskur 441 kg Steinbítur 403 kg Keila 7 kg Skarkoli 3 kg Samtals 2.455 kg 17.3.26 Hafrafell SU 65 Lína Steinbítur 2.620 kg Ýsa 1.095 kg Þorskur 254 kg Keila 235 kg Hlýri 26 kg Skarkoli 20 kg Karfi 6 kg Langa 2 kg Samtals 4.258 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Unnið úr síðustu loðnuförmunum Vantaði vettvang fyrir sérfræðinga Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi „Dýrmæt“ þekking Íslands fyrir heiminn 97% meiri afli en í febrúar 2025 „Þetta er sukk og spilling“ Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur „Dýrmæt“ þekking Íslands fyrir heiminn 97% meiri afli en í febrúar 2025 Gagnrýnir framkvæmd úttektar 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik „Þetta er sukk og spilling“ 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Fékk nótina í skrúfuna Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Þetta er sukk og spilling“ Gagnrýnir framkvæmd úttektar Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Fleira áhugavert Gerðu árás á sendiráð Bandaríkjanna í Írak Rýming á Ísafirði vegna snjóflóðs Efnahagsvísitalan áfram botnfrosin Norðvestan stormur og hríð Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 17.3.26 740,93 kr/kg Þorskur, slægður 17.3.26 677,95 kr/kg Ýsa, óslægð 17.3.26 557,26 kr/kg Ýsa, slægð 17.3.26 435,17 kr/kg Ufsi, óslægður 17.3.26 350,53 kr/kg Ufsi, slægður 17.3.26 413,15 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 17.3.26 259,30 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 17.3.26 Auður Vésteins SU 88 Lína Þorskur 101 kg Ýsa 43 kg Keila 20 kg Langa 9 kg Samtals 173 kg 17.3.26 Litlanes ÞH 3 Línutrekt Ýsa 1.601 kg Þorskur 441 kg Steinbítur 403 kg Keila 7 kg Skarkoli 3 kg Samtals 2.455 kg 17.3.26 Hafrafell SU 65 Lína Steinbítur 2.620 kg Ýsa 1.095 kg Þorskur 254 kg Keila 235 kg Hlýri 26 kg Skarkoli 20 kg Karfi 6 kg Langa 2 kg Samtals 4.258 kg Skoða allar landanir »

Share this article