Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Áætla 17 milljarða tekjur af veggjöldum á ári

Read Full Article →

Stjórnvöld áætla að tekjur áformaðs innviðafélags af veggjöldum af sex göngum og brúm verði yfir 17 milljarðar króna á ári miðað við verðlag 2026, eða sem samsvarar um 0,33% af vergri landsframleiðslu. Þetta kemur fram í greinargerð frumvarps um stofnun innviðafélagsins sem lagt var fram á Alþingi í gær. Fjármálaráðherra segir í tilkynningu að félaginu sé ætlað að hraða uppbyggingu stórra og þjóðhagslega mikilvægra samgönguverkefna á sama tíma og sköpuð sé skýr og sjálfbær umgjörð um fjármögnun og framkvæmd þessara verkefna. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í dag er horft til þess að færa nokkur samgöngumannvirki inn í innviðafélagið þar sem þegar er verið að innheimta eða stendur til að innheimta veggjöld, þar á meðal Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót. Að auki er til skoðunar að færa Hvalfjarðargöng inn í félagið og hefja þar gjaldtöku á ný. Ráðuneytið áætlar að tekjur af Hvalfjarðargöngum, Vaðlaheiðargöngum og Hornafjarðarfljóti verði um 9,8 milljarðar króna á ári. Horft er til þess að innviðafélagið taki að sér fjármögnun og eignarhald Sundabrautar, Fljótaganga og fjármögnun Ölfusárbrúar. Miðað við forsendur um umferð og meðalveggjöld er áætlað að veggjöld af þessum samgöngumannvirkjum verði um 7,5 milljarðar króna á ári. Vegagerðin hefur lagt til að stakt veggjald fyrir fólksbíl yfir Ölfusárbrú, sem stefnt er að því að opna haustið 2028, verði 495 krónur. Þá verði magnafsláttur fyrir fleiri ferðir. „Forsendur félagsins um innheimtu veggjalda samkvæmt sviðsmyndum fela í sér aukinn kostnað hjá notendum, innlendum sem erlendum. Áætlanir gera ráð fyrir meðalveggjöldum en í því felst að þeir sem ferðast reglulega geta keypt afsláttarkort í stað þess að greiða fyrir hverja ferð sérstaklega,“ segir í greinargerð frumvarps um innviðafélagið. Sjá einnig Skoða gjald­töku á Reykja­nes­braut og Suður­lands­vegi Ofangreind áætlun um mögulegar tekjur innviðafélagsins af veggjöldum tekur ekki til Reykjanesbrautar og Suðurlandsvegar sem nefnd eru til sögunnar í greinargerðinni sem möguleg samgöngumannvirki sem gætu einnig verið lögð inn í innviðafélagið.

Share this article