Innlent | mbl | 17.3.2026 | 21:21 Ekki víst að greinin yrði virkjuð þrátt fyrir árás Þorgerður Katrín á ársfundi Samorku í dag. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir ekki ótvírætt að hægt yrði að virkja fimmtu grein Atlantshafssáttmálans yrði Ísland fyrir árás á mikilvæga innviði. Þetta er meðal þess sem kom fram í ávarpi Þorgerðar á ársfundi Samorku. „Það hefur auðvitað ekki farið fram hjá neinum að við lifum á tímum þar sem öryggisumhverfi Evrópu og reyndar heimsins alls hefur breyst og það hefur breyst hratt,“ sagði hún í upphafi ávarpsins. „Alþjóðakerfið sem við höfum treyst og byggt okkar samfélag á í áratugi, vil ég segja, stendur frammi fyrir alvarlegum áskorunum. Við sjáum aukna spennu milli ríkja, landa og þjóða, óvissu í alþjóðaviðskiptum, tollastríð og átök og stríð allt of víða um heim og það hefur vissulega áhrif.“ Ekki öruggir þrátt fyrir landfræðilega legu Þá sagði hún Íslendinga ef til vill hafa talið sig hafa búið við öryggi vegna landfræðilegrar legu landsins. „Fjölþátta ógnir og aðrar öryggisráðstafanir nútímans hafa hins vegar gert það að verkum að við getum ekki verið blind fyrir þeim ógnum og jafnframt þeim vörnum sem þörf er á að byggja á og byggja upp í hverju samfélagi.“ „Þessar fjölþáttu ógnir geta birst með ýmsum hætti en ef árás verður gerð hér á Ísland þá verður það að mínu mati ekki í formi hefðbundins landhernaðar eins og við gjarnan sjáum fyrir okkur sem fyrstu árás heldur atlaga að innviðum, orkumannvirkjum, neðarsjávarstrengjum, ratsjárstöðvum, internetinu og okkar tengingu við umheiminn eða jafnvel í formi upplýsingaóreiðu, eins og við sjáum nú þegar.“ Umræðan um ESB og upplýsingaóreiða Í þessu samhengi beindi hún sjónum að umræðunni um Evrópusambandið sem nú stendur yfir. „Við höfum ítrekað verið vöruð við upplýsingaóreiðu og afskiptum annarra ríkja, þar sem stórveldi eins og Rússland hafa haft afskipti svo niðurstaða kosninga [...] henti Rússum eða öðrum stórvöldum sem best, ekki endilega borgurum viðkomandi landa,“ sagði Þorgerður. Þess vegna telur hún mikilvægt að fólk fylgist vel með hvaðan upplýsingar koma og hvort hagsmunir annarra en okkar sjálfra séu mögulega þar að baki Hver ver okkur? Þorgerður sagði að þróunin í heimsmálunum hefði líka sýnt að mikilvægir innviðir gætu reynst berskjaldaðir og að því væri enn mikilvægara en áður að við stöndum vörð um þá. Þá velti hún loks upp spurningunni: „Hver ver okkur og hvernig ef árás er gerð á innviði okkar? Er hægt að virkja fimmtu grein Atlantshafssáttmálans ef slíkar árásir yrðu gerðar á landið okkar?“ „Það er ekkert ótvírætt því að þröskuldurinn til að verja fimmtu grein NATO-sáttmálans, sem felur í sér að árás á eitt NATO-ríki sé árás á öll NATO-ríki, er mjög hár,“ sagði Þorgerður. „Og það er að ákveðnu leyti verkaskipting núna á milli NATO og ESB að þessu leyti, á meðan NATO sér meira um hefðbundnar varnir og vopnabúnað að þá eru ESB eða Evrópuríki, bæði innan NATO og Evrópusambandsins, að taka að sér og eru mjög framarlega þegar kemur að því að verjast þessum fjölþátta ógnum og hættunum sem þeim fylgja.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndir: strákarnir okkar vinsælir í Smáralind Ísland vann í lokaleiknum Fjórir fá fimmtíu milljónir Ekki víst að greinin yrði virkjuð þrátt fyrir árás Rífa gömlu brúna Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Sakar Kristrúnu um óheiðarlegan málflutning Gerðu árás á sendiráð Bandaríkjanna í Írak Hver er Ali Larijani? Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Hviður geta náð allt að 35 m/s Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Myndir: strákarnir okkar vinsælir í Smáralind Ísland vann í lokaleiknum Fjórir fá fimmtíu milljónir Ekki víst að greinin yrði virkjuð þrátt fyrir árás Rífa gömlu brúna Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svona á að styrkja þjónustu við börnin Sakar Kristrúnu um óheiðarlegan málflutning Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Ekki víst að greinin yrði virkjuð þrátt fyrir árás Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Hviður geta náð allt að 35 m/s Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir