Innlent | mbl | 17.3.2026 | 22:52 „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Í þessu húsi við Grensásvegi stendur til að opna kaffistofu Samhjálpar og eru þar ekki allir á eitt sáttir, íbúar í hverfinu telja öryggi barna ógnað með staðsetningunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Afgreiðslu í máli umdeildrar og væntanlegrar kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46 hjá umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar hefur verið frestað um eina viku. Þetta staðfestir Líf Magneudóttir ráðsformaður við mbl.is. Segir hún beiðni hafa borist frá ráðamönnum borgarinnar um frestun sem geri það að verkum að mál íbúa í hverfinu vegna kaffistofunnar verði ekki tekið þar fyrir á morgun heldur á miðvikudaginn í næstu viku. Stefán Björnsson er íbúi í hverfinu og í hópi þeirra sem orð hafa fyrir baráttumönnum gegn staðsetningu kaffistofunnar inni í íbúðarhverfi og í nánd við tvo barnaskóla. Frétt af mbl.is „Heimili okkar á að vera griðastaður“ „Framkvæmdirnar við Grensásveg 46 voru settar í grenndarkynningu sem margar athugasemdir voru gerðar við,“ segir Stefán við mbl.is, „haldinn var mjög fjölmennir íbúafundur í hverfinu sem hátt í 170 manns mættu á og þar kom fram gríðarleg andstaða við flutning kaffistofunnar inn í hverfið. Þeir sem settu inn athugasemdir við grenndarkynninguna hafa ekki fengið nein svör sem okkur finnst mjög skrýtið,“ heldur hann áfram. „Teljum bara alls ekki að það sé rétt“ Nefnir hann bréf umboðsmanns barna til Reykjavíkurborgar þar sem fram hafi komið að eðlilegt væri að Reykjavíkurborg hefði framkvæmt einhvers konar áhættumat vegna barna í hverfinu áður en til leyfisveitingar kæmi. Fjallaði mbl.is nýlega um bréf umboðsmanns. Frétt af mbl.is Sendir borginni bréf vegna ábendinga frá foreldrum „Mér skilst að þessu bréfi hafi ekki verið svarað og nú standi bara til að samþykkja þetta og vísa því til fullnaðarafgreiðslu hjá byggingarfulltrúa. Eins skilst mér að slökkviliðið sé ekki búið að gefa jákvæða umsögn, við teljum að allar breytingar þarna innanhúss séu líka háðar byggingarleyfi og nú er þegar búið að gera miklar, á lögnum og öðru slíku, þarna í húsinu,“ segir Stefán um stöðu mála á Grensásvegi 46. Segir hann áhyggjur íbúa þyngja þeim verulega. „Það er verið að segja við okkur að það stafi engin hætta af þessu og við teljum bara að það sé alls ekki rétt,“ segir Stefán og tekur fram að íbúar hverfisins styðji starfsemi Samhjálpar heils hugar, hins vegar sé það engan veginn forsvaranlegt að velja kaffistofunni þessa staðsetningu miðað við viðskiptamannahóp hennar. Heilt hverfi með árásarhnappa? „Auðvitað er lífsnauðsynlegt að þetta starf eigi sér stað svo fólk fái að borða en við teljum bara að þetta sé ekki heppilegur staður,“ segir Stefán og bendir á að forsvarsmenn Samhjálpar hafi sjálfir sagt að ekki sé gott að hafa stað á borð við kaffistofuna þar sem mikið sé af börnum. Frétt af mbl.is Vilja fá svör frá borgaryfirvöldum „Fólki undir átján ára aldri er bannaður aðgangur að kaffistofunni,“ segir hann máli íbúanna til stuðnings og nefnir enn fremur að starfsfólk kaffistofunnar beri árásarhnappa sem reglulega þurfi að grípa til. „Á heilt hverfi þá að fá árásarhnappa?“ spyr Stefán sem sjálfur starfar í námunda við kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni og segir þar ýmislegt miður fallegt eiga sér stað. Koffín er ekki alltaf eina áhrifaefnið í blóði þess hóps sem skjólstæðingar kaffistofu Samhjálpar hýsa og nefnir Stefán nýlegt dæmi. „Það var bara núna á laugardaginn sem maður braust inn í Borgartún 6 og rústaði öllum íbúðunum þar efst uppi, við fundum manninn hálfsturlaðan og hálfnakinn hérna niðri hjá okkur. Ég veit að hann er fastagestur hjá kaffistofunni,“ segir Stefán frá. Samhjálp segi ekki feitan gölt að flá Hann segir eitt vera að þurfa að eiga við slíkar uppákomur í vinnunni, „það er óþægilegt en þú þolir það. En nú á að setja kaffistofuna inn í heilt íbúðarhverfi og fólk býr bókstaflega í sama húsi og kaffistofan er að fara í. Ég held að svona lagað yrði hvergi gert erlendis og ég sé ekki annað en að það eigi bara að keyra þetta í gegn,“ segir Stefán og dylur ekki áhyggjur sínar. Hvað með aðra staði, kemur virkilega ekki önnur staðsetning til greina? „Þeir [Samhjálp] segjast ekki finna aðra staði, það var nú ein kona hérna sem hringdi bara í marga fasteignasala og þeir sögðu að nóg væri af lausu atvinnuhúsnæði. Hér þyrfti að aka með fólkið úr borginni og upp eftir til okkar og viðeigandi ráðstafanir hafa ekki verið gerðar til að koma því til baka. Þeir eru með einhverja sjö manna rútu og þetta eru mörg hundruð manns, þetta er rosalegur fjöldi,“ segir Stefán. Frétt af mbl.is Lýsa áhyggjum af öryggi barna Hvorki bílastæði né umhverfi Grensásvegar 46 anni slíku álagi, „mörgum sem sækja kaffistofuna er bannaður aðgangur að strætisvögnum. Það sem mun mjög líklega gerast er að fólk muni verða eftir í hverfinu og leita sér að næturstað þar til kaffistofan opnar á ný. Við teljum að þetta sé röng hugsun, þú reynir eðlilega að skipuleggja borg þannig að skóli sé í miðju íbúðarhverfi, þú hefur ekki skóla uppi á Esjunni, olíutankar eru við höfnina og fjarri íbúðum. Reykjavík er mjög dreifð og margir staðir þar sem hægt er að koma svona starfsemi fyrir þannig að tiltölulega lítil truflun sé af fyrir nágrannana,“ segir Stefán og er ekki ánægður með áherslur borgarinnar. „Íbúarnir óttast að þetta endi bara með skelfingu, síðast í gær voru tveir menn í hörkuslagsmálum hér í Borgartúninu og mig grunar nú að þeir hafi verið gestir kaffistofunnar. Maður skilur þetta ekki alveg, borgin varð ekki við ósk Samhjálpar um fjárframlag núna seinast og maður áttar sig ekki alveg á því á hvaða vegferð borgaryfirvöld eru. Talað erum íbúalýðræði og góða skipulagningu en borgin virðir hvorugt,“ segir Stefán Björnsson, talsmaður íbúa við Grensás og Hvassaleiti, að lokum um kaffistofumálið. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þýðir ekkert að vera hræddur Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Meistaradeildin: Arsenal hélt uppi heiðri ensku liðanna Allt annað en sáttur við enska fjölmiðla Snýr aftur og hannar fyrir Zöru Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Ekki víst að greinin yrði virkjuð þrátt fyrir árás Rýming á Ísafirði vegna snjóflóðs Gerðu árás á sendiráð Bandaríkjanna í Írak Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Arndís Bára fær ár til viðbótar Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Þýðir ekkert að vera hræddur Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Meistaradeildin: Arsenal hélt uppi heiðri ensku liðanna Allt annað en sáttur við enska fjölmiðla Snýr aftur og hannar fyrir Zöru Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir af sér vegna Íransstríðsins Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Páll kom að magnaðri lækningu Rosie Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Arndís Bára fær ár til viðbótar Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir