Innlent | Morgunblaðið | 2.3.2026 | 7:55 „Heimili okkar á að vera griðastaður“ „Ég hef áhyggjur af ófyrirsjáanleika og áhyggjur af óboðnum gestum í kringum heimili mitt, mitt öryggi og skjól,“ segir móðir í hverfinu. mbl.is/Karítas Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki „Ég geri mér grein fyrir að hópurinn sem Samhjálp sinnir er viðkvæmur og það þarf að hlúa vel að honum,“ segir Emma Ævarsdóttir, móðir sem býr í nágrenni við fyrirhugaða kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi 46. „Ég er ekki fíknifræðingur, en við foreldrar í hverfinu erum frávita af áhyggjum af því að margir sem koma á kaffistofuna eru virkir fíklar, og þeim áhrifum sem það mun hafa á umhverfið. Mér finnst eins og það megi ekki minnast á að það sé áhætta fyrir börn og aðra að búa í návígi við svæði þar sem virkir fíklar eru daglega.“ Mæður í hverfinu hafa komið saman til að mótmæla þessum fyrirætlunum að setja kaffistofuna inn í mitt íbúðahverfi, en í sama húsi eru m.a. íbúðir í útleigu, þótt atvinnustarfsemi sé á fyrstu hæðinni. Það má búast við því að íbúar í húsinu muni finna áhrif af komu kaffistofunnar, hvort sem það sé sígarettureykur sem berst inn um glugga eða rask af öðrum völdum. „Skólinn hjá börnunum er búinn kl. 13.40 svo á skóladögum eru þau einmitt á ferð um hverfið á sama tíma og gestir kaffistofunnar eru að tínast út, sem býður upp á áhyggjur og ófyrirsjáanleika sem ég er ekki tilbúin að sætta mig við,“ segir önnur móðir í hópnum. Ekki hentugt húsnæði Í byrjun febrúar boðuðu íbúar í hverfinu til fundar með fulltrúum borgarinnar og Samhjálpar. Emma segir að fyrir þann tíma hafi einungis verið grenndarkynning á netinu og þrátt fyrir 40 athugasemdir áhyggjufullra foreldra, hafi ekki verið tekið tillit til athugasemdanna. Hún segir að það sem hafi slegið hana á þessum fundi sé að Samhjálp segi húsnæðið ekki henta vel starfseminni. Það þurfi að flytja fólki á kaffistofuna og eins er ekkert eldhús svo öll aðföng þarf að flytja daglega. „Það er líka allt annað að setja svona starfsemi inn í mitt íbúðahverfi heldur en í atvinnuhverfi. Þetta hefur áhrif á nærumhverfi fólks, sem býr kannski í nokkurra metra fjarlægð frá kaffistofunni og hver veit hvaða áhrif það hefur á börn sem eiga að geta verið áhyggjulaus úti? Mér finnst það miklu minna inngrip að hafa starfsemina þar sem fólk stundar vinnu, heldur en í kringum heimili þess. Heimilið á að vera okkar griðastaður og mér finnst hagur barna eiga að ganga fyrir í svona málum,“ segir Emma. Þá segir hún að fulltrúar borgarinnar hafi ekki tekið með afgerandi hætti á málinu á þessum íbúafundi. „Ég skil ekki heldur af hverju borgin getur ekki byggt húsnæði fyrir þennan hóp á svæði sem er ekki steinsnar frá heimilum barnafólks. Þetta eru jú þeirra skjólstæðingar og þarf ekki að finna betri lausn sem hentar öllum?“ Börnin ekki með neyðarhnapp Önnur móðir segist búa í nokkurra metra fjarlægð frá fyrirhugaðri staðsetningu kaffistofu Samhjálpar. „Ég hef verulegar áhyggjur af þessari nálægð. Það hefur komið fram í viðtölum við Samhjálp að það sé alltaf viðloðandi ofbeldi við kaffistofuna og þess vegna séu þau með neyðarhnapp, sem sé notaður reglulega. Það er því vægast sagt skrýtið að foreldrum sé sagt að allar áhyggjur af öryggi barna okkar séu óþarfar. Við erum ekki með neyðarhnapp og ekki börnin okkar.“ Þá segja mæðurnar að staðan geti haft neikvæð áhrif á fasteignaverð og ein þeirra segir að hún viti af íbúð í sölu þar sem skilyrði sé sett að kaffistofan komi ekki í hverfið. Verða að finna betri lausn „Þetta mál er ein stór harmsaga fyrir alla þá sem að því koma. Nú er búið að stilla okkur íbúum upp á móti Samhjálp á einhvern ömurlegan hátt sem mér eiginlega býður við. Við hljótum að geta staðið vörð um mannúð og einnig sett hagsmuni og öryggi barna okkar í forgang,“ segir ein móðir. Allar eru þær sammála um að lausn þurfi að finnast í málefnum kaffistofunnar og endalaus frestun á því að finna lausnina henti engum, hvorki íbúum hverfisins, né Samhjálp sem greiðir nú leigu fyrir húsnæði sem þau geta ekki notað. „Borgaryfirvöld verða bara að gera betur,“ segja þær. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Heimili okkar á að vera griðastaður“ ESB styður öll aðildarríki sem standa frammi fyrir ógn Margir vegir lokaðir fyrir austan Stórfelldar árásir á Teheran Reykur stígur upp frá bandaríska sendiráðinu í Kúveit Umræðan „Planið er að virka“ Verðmætasköpunin er í Fjarðabyggð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Khamenei látinn Myndskeið: Íranar fagna falli Khameneis Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Drónaskynjarar orðnir algengir Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Óveður á austurhelmingi landsins 763 efnaskiptaaðgerðir frá 2022 Lýsingu breytt á Austurvelli „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » „Heimili okkar á að vera griðastaður“ ESB styður öll aðildarríki sem standa frammi fyrir ógn Margir vegir lokaðir fyrir austan Stórfelldar árásir á Teheran Reykur stígur upp frá bandaríska sendiráðinu í Kúveit Umræðan „Planið er að virka“ Verðmætasköpunin er í Fjarðabyggð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Aðsetur æðstaklerksins jafnað við jörðu Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Óveður á austurhelmingi landsins 763 efnaskiptaaðgerðir frá 2022 Lýsingu breytt á Austurvelli „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga