Fimm menn voru í gærkvöld úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar líkamsárásar í Túnahverfi í Reykjavík í fyrrinótt. Sjö voru handteknir um nóttina og yfirheyrðir í gær. Tveimur hefur verið sleppt úr haldi. Hinir voru í úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknarinnar, fjórir fram á föstudag og einn fram á miðvikudag í næstu viku. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ráðist á þrjá menn. Einn þeirra var fluttur á Landspítalann og færður á gjörgæsludeild. Lögregla segir að árásin hafi verið lífshættuleg. Hinir tveir mennirnir særðust minna í árásinni.