Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna meiriháttar líkamsárásar

Read Full Article →

Tveir fjögurra manna sem hafa verið í haldi lögreglu, grunaðir um alvarlega líkamsárás í íbúð í miðborg Reykjavíkur í gær, hafa verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Hinum tveimur hefur verið sleppt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynning um meiriháttar líkamsárás barst lögreglu um miðnætti í gærkvöld. Sá sem varð fyrir árásinni er karlmaður á fertugsaldri. Hann var fluttur á slysadeild með talsverða áverka en hefur verið útskrifaður.

Share this article