Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjórir í haldi vegna líkamsárásar í miðborginni

Read Full Article →

Fjórir karlar eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í íbúð á miðborgarsvæðinu, að því er segir í tilkynningu lögreglu. Tilkynning um árásin barst um miðnætti. Í dagbók lögreglu kemur fram að árásin hafi verið „meiriháttar“. Í tilkynningu frá lögreglu segir að sá sem var fyrir árásinni , karlmaður á fertugsaldri, hafi verið fluttur á slysadeild með talsverða áverka. Líðan hans er eftir atvikum. Mennirnir sem eru í haldi voru handteknir annars staðar í borginni í nótt. Rannsókn málsins er á frumstigi.

Share this article