Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar meiriháttar líkamsárás sem gerð var í miðborginni í gærkvöld eða nótt. Lögreglubíll í Aðalstræti. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már Eiðsson Frá þessu er greint í morgunskeyti lögreglu án þess að tíunda málsatvik frekar. Lögreglan hefur einnig til rannsóknar þjófnað úr matvöruverslun eftir nóttina, árekstur og afstungu, rúðubrot í heimahúsi ásamt innbroti í íbúðarhús í Árbæ. Sérstöku innbrotaeftirliti var haldið uppi í Laugardal og Múlahverfi í gærkvöld og nótt. Ungmenni sem höfðu kastað snjóboltum í bíla fundust ekki þegar lögreglumenn bar að. Skráningarnúmer voru klippt af fjórum bílum í úthverfi vegna skorts á tryggingum.