Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leikskólastarfsmaður á Akranesi grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Read Full Article →

Starfsmaður leikskóla á Akranesi sætir rannsókn hjá lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi Akranesbæjar í samtali við fréttastofu. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir upplýsingafulltrúi segir málið í höndum lögreglu og það sé á viðkvæmu stigi. Vísir greindi frá málinu í gærkvöld og segir manninn hafa verið handtekinn í gær. Fundað var með foreldrum barna á leikskólanum í gær og skólastarf gengur sinn vanagang í skólanum, að sögn Sigrúnar. Ekki náðist í lögregluna á Vesturlandi við vinnslu fréttarinnar.

Share this article