Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að rannsóknir á ábendingu um meint kynferðisbrot gegn leikskólabarni á Akureyri hafi ekki leitt neitt í ljós sem stutt hafi við framburð um að brotið hafi verið gegn barninu. Hún segir að aðstandandi barnsins hafi sagt lögreglu að ungur maður hefði viðhaft óviðeigandi háttsemi gagnvart barninu. Hann vann á leikskólanum Tröllaborgum en þekkti barnið einnig af öðrum tengslum. „Rannsókn málsins beindist að kynferðislegri áreitni einkum vegna meintra kossa. Við rannsóknina kom ekkert fram sem studdi framburð aðstandanda. Rannsókn var hætt í málinu í október 2024,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á Facebook. Lögregla hóf rannsókn að nýju eftir að niðurfelling málsins var kærð til ríkissaksóknara. „Áður en Ríkissaksóknari hafði tekið afstöðu í málinu komu frekari upplýsingar frá barnavernd um að maðurinn hafi játað kynferðislega áreitni fyrir ættingja sínum líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum,“ segir lögreglan. „Rannsóknin laut að sömu háttsemi og áður. Ekkert kom fram við rannsóknina sem studdi framburð aðstandanda.“ Lögregla segist hafa óskað eftir því á fundum með foreldrum barnsins að þeir kæmu nýjum upplýsingum um meint brot mannsins á framfæri við lögreglu ef þeir hefðu slíkar upplýsingar. „Engar upplýsingar hafa borist. Í málinu liggur ekki fyrir rökstuddur grunur um að maðurinn hafi gerst brotlegur gagnvart barninu.“ Fréttin verður uppfærð.