- What: Investigation into alleged child abuse at a daycare in Akureyri
- Impact: No evidence found, case dismissed
Innlent | mbl | 27.3.2026 | 10:48 Ekki rökstuddur grunur fyrir broti Málið var rannsakað í tvígang. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að ekki liggi fyrir rökstuddur grunur um að starfsmaður á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri hafi brotið kynferðislega gegn barni á leikskólanum. Málið hafi verið rannsakað í tvígang en ekkert hafi komið fram sem hafi stutt framburð aðstandanda barnsins, sem gaf barnavernd upplýsingar um meint brot áður en það kom inn á borð lögreglu. Rannsókn málsins beindist að kynferðislegri áreitni, einkum vegna meintra kossa, en rannsóknin var tekin upp aftur eftir að lögregla fékk upplýsingar um að maðurinn hefði játað kynferðislega áreitni fyrir ættingja sínum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Frétt af mbl.is Meint brot gegn leikskólabarni verði skoðað aftur Fundað með foreldrum í vikunni Greint var frá því fyrr í vikunni að Akureyrarbær hefði ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna málsins sem kom til kasta lögreglu haustið 2024. Í fyrstu var talið að meint brot hefði átt sér stað utan leikskólans og því voru foreldrar annarra barna ekki upplýstir um málið. Í kjölfar þess að Akureyrarbær fékk nýjar upplýsingar um að meint brot hefði átt sér stað innan leikskólalóðar var boðað til fundar með foreldrum í byrjun þessarar viku og í tilkynningu frá bænum kom fram að óskað yrði eftir því við lögreglu að málið yrði tekið upp aftur. Frétt af mbl.is Fengu nýjar upplýsingar um meint brot Ríkissaksóknari staðfesti „Málið var tilkynnt lögreglu af hálfu barnaverndar vegna upplýsinga frá aðstandanda barns á leikskólaaldri um að ungur maður hafi viðhaft óviðeigandi háttsemi gagnvart barni, sem hann þekkti einnig vegna annarra tengsla en sem starfsmaður leikskóla. Rannsókn málsins beindist að kynferðislegri áreitni, einkum vegna meintra kossa,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. Ekkert hafi komið fram við þá rannsókn sem hafi stutt framburð aðstandenda. Rannsókninni hafi því verið hætt í október 2024 en sú ákvörðun var kærð til Ríkissaksóknara. „Áður en ríkissaksóknari hafði tekið afstöðu í málinu komu frekari upplýsingar frá barnavernd um að maðurinn hafi játað kynferðislega áreitni fyrir ættingja sínum líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum. Lögregla hóf þá rannsókn á málinu að nýju. Rannsóknin laut að sömu háttsemi og áður. Ekkert kom fram við rannsóknina sem studdi framburð aðstandanda. Rannsókn var hætt í málinu á ný í desember 2024. Ákvörðun embættisins var kærð til Ríkissaksóknara sem staðfesti niðurstöðu lögreglustjóra í apríl 2025.“ Engar upplýsingar borist Var barninu skipaður réttargæslumaður vegna rannsóknar málsins í tvígang og nú hefur þriðji lögmaðurinn tekið málið að sér, segir í tilkynningunni. Þá hafi lögregla óskað eftir því á fundum með foreldrum að þeir komi nýjum upplýsingum um meint brot á framfæri við lögreglu hafi þeir slíkar upplýsingar. Engar upplýsingar hafi borist. „Í málinu liggur ekki fyrir rökstuddur grunur um að maðurinn hafi gerst brotlegur gagnvart barninu.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ekki rökstuddur grunur fyrir broti Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Virtur blaðamaður hrósar Íslendingnum í hástert Réttindi landeigenda skert Eyþór Fannar skipar oddvitasætið Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Krefjandi aðstæður á brautinni Yfirgefin ökutæki torvelduðu snjómokstur Margir vegir lokaðir vegna ófærðar Stórfelld árleg hækkun gjalda Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Bubbi spáir hruni Spotify Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Ekki rökstuddur grunur fyrir broti Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Virtur blaðamaður hrósar Íslendingnum í hástert Réttindi landeigenda skert Eyþór Fannar skipar oddvitasætið Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stórfelld árleg hækkun gjalda Yfirgefin ökutæki torvelduðu snjómokstur Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Bubbi spáir hruni Spotify Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“