Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óviðeigandi hegðun gegn leikskólabarni á Akureyri til rannsóknar lögreglu

  • What: Investigation into inappropriate behavior by a daycare worker in Akureyri
  • Impact: Childcare staff and parents involved in the case
Read Full Article →

Akureyrarbær hefur óskað eftir því að óviðeigandi framkoma leikskólastarfsmanns gagnvart barni á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri haustið 2024 verði tekið til rannsóknar hjá lögreglu að nýju. Akureyrarbær hyggst fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna málsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ. Starfsmanninum var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp, en hann var á tímabundnum samningi frá 18. apríl fram til 17. október. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla. Upplýsingaflæði ekki fullnægjandi Í tilkynningu segir að ýmislegt bendi til þess að upplýsingaflæði hafi ekki verið fullnægjandi á þeim tíma. Markmið Akureyrarbæjar sé að tryggja með afgerandi hætti að sambærileg mál séu í framtíðinni meðhöndluð á eins skýran og faglegan hátt og unnt er. Síðdegis í gær voru haldnir fundir með með foreldrum og forráðamönnum barna í leikskólanum Tröllaborgum. Fundina sátu fulltrúar bæjarins, lögreglu, barnaverndar, stjórnendur skólans og sérfræðingur um hagnýtar leiðbeiningar til barna og foreldra ef upp kemur grunur um brot á barni. Tilgangur fundarins var að veita foreldrum upplýsingar um málið auk þess að bjóða upp á ráðgjöf um hvernig ræða megi erfið mál við börn. Foreldrum var jafnframt leiðbeint um hvert þeir geti leitað hafi þeir áhyggjur af velferð barna sinna og hvernig koma megi á framfæri ábendingum til lögreglu. Óska eftir lögreglurannsókn Akureyrarbær ætlar að óska eftir því við lögreglu að málið verði tekið aftur til rannsóknar reynist forsendur fyrir því til þess að draga úr óvissu um atvik og niðurstöður fyrir foreldra og starfsfólk. Sveitarfélagið biðst afsökunar á því að foreldrar hafi ekki fengið upplýsingar fyrr. Á næstu vikum verður verklag bæjarins varðandi innri ferla og skipulag rýnt og endurbætt. Markmiðið er að bæta upplýsingaflæði, verklag og viðbrögð, og skerpa á hlutverkaskiptingu í viðkvæmum málum segir í tilkynningu. Hlutaðeigandi aðilar, þar á meðal starfsfólk og foreldrar, muni koma að þeirri vinnu auk þess sem leitað verður ráðgjafar sérfræðinga eftir þörfum. Þá segir sveitarfélagið að rík áhersla verði lögð á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum. Öryggi og velferð allra barna skuli ávallt og undantekningarlaust vera í fyrirrúmi þegar þjónusta sveitarfélagsins er annars vegar og mikilvægt að foreldrar geti borið fullt traust til þeirra verkferla sem unnið er eftir. Þá vill Akureyrarbær taka það skýrt fram að sveitarfélagið ber fullt traust til starfsfólks leikskólans Tröllaborga hér eftir sem hingað til.

Share this article