Innlent | mbl | 24.3.2026 | 10:30 Meint brot gegn leikskólabarni verði skoðað aftur Málið kom upp á leikskólanum Tröllaborgum árið 2024. Setja bókamerki Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Ýmislegt bendir til þess að upplýsingaflæði hafi á þeim tíma ekki verið fullnægjandi, að segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp og það var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla. Akureyrarbær hyggst hins vegar óska eftir því við lögreglu að málið verði tekið aftur til skoðunar reynist forsendur fyrir því, þannig að óvissa um atvik og niðurstöður verði sem minnst fyrir foreldra og starfsfólk. Fundir haldir í gær Í tilkynningunni kemur fram að markmið Akureyrarbæjar sé að tryggja með afgerandi hætti að sambærileg mál verði í framtíðinni meðhöndluð á eins skýran og faglegan hátt og unnt sé. Í gær, mánudaginn 23. mars, voru haldnir fundir með foreldrum og forráðamönnum barna í leikskólanum Tröllaborgum. Fundina sátu fulltrúar bæjarins, lögreglu, barnaverndar, stjórnendur skólans og sérfræðingur um hagnýtar leiðbeiningar til barna og foreldra ef upp kemur grunur um brot á barni. Tilgangur fundarins var að veita foreldrum upplýsingar um málið, auk þess að bjóða upp á ráðgjöf um hvernig ræða megi erfið mál við börn. Foreldrum var jafnframt leiðbeint um hvert þeir geti leitað hafi þeir áhyggjur af velferð barna sinna og hvernig koma megi á framfæri ábendingum til lögreglu. Rík áhersla lögð á fræðslu „Akureyrarbær biðst afsökunar á því að foreldrar hafi ekki fengið upplýsingar fyrr. Á næstu vikum verður verklag bæjarins varðandi innri ferla og skipulag rýnt og endurbætt. Markmiðið er að bæta upplýsingaflæði, verklag og viðbrögð, og skerpa á hlutverkaskiptingu í viðkvæmum málum. Hlutaðeigandi aðilar, þar á meðal starfsfólk og foreldrar, munu koma að þeirri vinnu auk þess sem leitað verður ráðgjafar sérfræðinga eftir þörfum. Einnig er lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum,“ segir meðal annars í tilkynningunni. „Öryggi og velferð allra barna skal ávallt og undantekningarlaust vera í fyrirrúmi þegar þjónusta sveitarfélagsins er annars vegar og mikilvægt er að foreldrar geti borið fullt traust til þeirra verkferla sem unnið er eftir.“ Þá er það tekið fram að Akureyrarbær beri fullt traust til starfsfólks leikskólans Tröllaborga hér eftir sem hingað til. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Calm night after a demanding day for rescue teams Marika og Gunnar Íslandsmeistarar Formenn neita að mæta í kosningasjónvarpið Meint brot gegn leikskólabarni verði skoðað aftur Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð allsstaðar Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hálftíma argaþras á þingi Unglingspiltur skar mann í strætó Segir fjáraukalög hafa verið brotin Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur „Ég er harmi slegin“ Bílar innlyksa vegna snjóflóðs Sjúkrabíl fylgt frá Egilsstöðum til Akureyrar Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Ég er harmi slegin“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Calm night after a demanding day for rescue teams Marika og Gunnar Íslandsmeistarar Formenn neita að mæta í kosningasjónvarpið Meint brot gegn leikskólabarni verði skoðað aftur Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð allsstaðar Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir fjáraukalög hafa verið brotin Sá stærsti í hálft ár „Kommissarinn“ íslenskur Allt innanlandsflug í lamasessi til morguns Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur „Ég er harmi slegin“ Bílar innlyksa vegna snjóflóðs Sjúkrabíl fylgt frá Egilsstöðum til Akureyrar Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Ég er harmi slegin“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri