Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Seðlabankinn hækkar vexti

Read Full Article →

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur, úr 7,25% í 7,5%. Þrír nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en tveir vildu hækka meginvexti um 0,5 prósentur. Aukin hætta á að endurskoðunarákvæði kjarasamninga virkjast Í yfirlýsingu nefndarinnar er bent á að verðbólga hafi mælst 5,2% tvö mánuði í röð. Að nokkru leyti megi rekja það til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Þá hafi bæst við áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum vinnumarkaði í byrun árs. „Undirliggjandi verðbólga hefur aukist og ekki verið meiri í ríflega ár. Verðbólguvæntingar eru jafnframt teknar að hækka.“ Aukin hætta sé á að endurskoðunarákvæði kjarasamninga muni virkjast síðar á árinu sem gæti aukið enn frekar á undirliggjandi verðbólguþrýsting. Forsendur fyrir endurskoðun kjarasamninga fela í sér að ársverðbólga mælist yfir 4,7% í næstkomandi ágústmælingu Hagstofunnar eða að verðbólga frá mars-ágúst verði yfir 4,4% miðað við árshraða. Í þessu samhengi bendir nefndin á að mikil hækkun olíuverðs og annarrar hrávöru í kjölfar stigmögnunar átaka við Persaflóa hafi nú þegar leitt til frekari hækkunar á verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði. „Dragist átökin á langinn er hætta á að verðhækkanir breiðist út, ekki síst þar sem verðbólguvæntingar eru eins háar og raun ber vitni. Nefndin segist tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum. Fréttin hefur verið uppfærð.

Share this article