Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Stuðla

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.3.2026 | 10:04 Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Stuðla Eldsvoðinn á Stuðlum varpar ljósi á veikleika í því kerfi sem ætlað er að tryggja brunavarnir í mannvirkjum þar sem vistaðir eru viðkvæmir einstaklingar sem ekki eru færir um að koma sér sjálfir út eða á öruggt svæði við eldsvoða. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Svona á að styrkja þjónustu við börnin Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Einn í meðferð á nýju meðferðarheimili Skýrsla vegna brunans birt síðar í mánuðinum Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista » Fleiri tengdar fréttir Alvarlegir annmarkar á brunavörnum, virkni þeirra og eftirlit höfðu veruleg áhrif á öryggi og mannslíf þegar eldur braust út á Stuðlum í október 2024. Ekki var brugðist við ítrekuðum kröfum um nauðsynlegar úrbætur árin áður og er ljóst að draga verður lærdóm af eldsvoðanum. Þetta kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem hefur nú lokið rannsókn sinni á brunanum. Sautján ára drengur lést í brunanum og starfsmaður slasaðist. Tíu eru komnir með réttarstöðu sakbornings vegna eldsvoðans. Samkvæmt heimildum mbl.is nær hópurinn út fyrir Stuðla og Barna- og fjölskyldustofu. Frétt af mbl.is 17 ára barn lést í brunanum Frétt af mbl.is Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Ekki í samræmi við brunahönnun Í mannvirkjum þar sem vistaðir eru viðkvæmir einstaklingar sem ekki eru færir um að koma sér sjálfir út eða á öruggt svæði í eldsvoða eru gerðar auknar kröfur til brunavarna og eftirlits með þeim. HMS segir rannsóknina hafa leitt í ljós að brunavarnirnar hafi ekki verið í samræmi við brunahönnun og þær lögbundnu kröfur sem eru gerðar til brunavarna og mannvirkjagerðar. „Samkvæmt lögum ber eigandi og eftir atvikum forráðamaður mannvirkis ábyrgð á því að brunavarnir séu virkar og að reglubundið eftirlit sé viðhaft.“ Frétt af mbl.is Ný atriði komin fram í tengslum við brunann Ríkiseignir brugðust ekki við HMS segir enn fremur að ekki hafi verið brugðist við ítrekuðum kröfum um nauðsynlegar úrbætur á brunavörnum árunum fyrir eldsvoðann. Kröfurnar voru gerðar gagnvart Ríkiseignum, sem var eigandi mannvirkisins. Annars vegar voru kröfur gerðar um úrbætur í kjölfar hefðbundins eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og hins vegar við framkvæmd öryggis- og lokaúttekta byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Frétt af mbl.is „Ég á erfitt með að keyra upp Ártúns­brekk­una“ Fjórar úrbótatillögur HMS leggur til fjórar úrbótatillögur sem skiptast niður í fjórtán liði „í þeim tilgangi að knýja fram úrbætur til að tryggja öryggi og vernda mannslíf“. Tillaga 1 snýr að því að eigendur og forráðamenn mannvirkja taki ábyrgð á eigin brunavörnum. Tillagan felur í sér að ráðist verði í skipulagt fræðsluátak og að gerðar verði leiðbeiningar til að auka skilning á ábyrgð eigenda og forráðamanna á brunavörnum. Samhliða verði farið í sérstakt eftirlitsátak með mannvirkjum þar sem einstaklingar eru ekki færir um að koma sér út sjálfir. Liðir hennar eru eftirfarandi: Fræðsla til eigenda og forráðamanna mannvirkja um ábyrgð þeirra á eigin brunavörnum. Gerð leiðbeininga um eftirlit með mannvirkjum í notkunarflokki 6. Ráðist verði í sérstakt átak í eftirliti með mannvirkjum í notkunarflokki 6.. Slökkvistjóri leggi á stjórnvaldssektir og eftir atvikum kæri brot til lögreglu. Tillaga 2 snýr að því að byggingarfulltrúar komi í veg fyrir að mannvirki verði tekin í notkun án útgefins öryggis- og lokaúttektarvottorðs. Tillagan felur í sér aukna fræðslu og eftirfylgni með starfi byggingarfulltrúa varðandi ábyrgð þeirra og lagalegar skyldur við framkvæmd öryggis- og lokaúttekta. Sömuleiðis yrði eftirfylgni aukin með því að öryggis- og lokaúttektum ásamt tilheyrandi vottorðum sé skilað í mannvirkjaskrá og að slökkviliðum sé tryggður aðgangur að gögnunum. Liðir hennar eru eftirfarandi: Fræðsla til byggingarfulltrúa um ábyrgð þeirra og skyldur við öryggis- og lokaúttektir. Veita slökkviliðum aðgang að öryggis- og lokaúttektarvottorðum, auk meðfylgjandi gagna. Byggingarfulltrúi leggi á stjórnvaldssekt, eftir atvikum banni notkun mannvirkis og kæri brot til lögreglu. Uppfæra skoðunarlista HMS vegna öryggis- og lokaúttekta m.t.t. brunavarna. Tillaga 3 snýr að mannvirkjaskrá HMS verði nýtt til að tryggja sameiginlegt aðgengi eftirlitsaðila að hönnunargögnum mannvirkja. Tryggja þarf að brunavarnir séu í samræmi við brunahönnun, að viðhaft sé reglubundið eftirlit með virkni þeirra og að unnið sé eftir rýmingaráætlun. Liðir hennar eru eftirfarandi: Tryggja þarf að byggingarfulltrúi, slökkvilið og þjónustuaðilar brunavarna vinni með sömu hönnunargögn mannvirkis. Fræðsla og þjálfun starfsmanna á brunavörnum mannvirkis í rekstri, virkni þeirra og framkvæmd rýmingaráætlunar. Tillaga 4 snýr að því að styrkja framkvæmd eldvarnaeftirlits slökkviliða með aukinni fræðslu, leiðbeiningum og breytingu á regluverki með hliðsjón af áhættumiðuðu eftirliti og breyttu byggingareftirliti. Liðir hennar eru eftirfarandi: Gerðar verði leiðbeiningar um eigið eldvarnareftirlit. Fræðsla til slökkviliða um kröfur sem gerðar eru til eldvarnareftirlits, sér í lagi mannvirki í notkunarflokki 6. Endurskoða hlutverk eldvarnarfulltrúa skv. reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit. Endurskoða framkvæmd eldvarnareftirlits skv. reglugerð um e ldvarnir og eldvarnareftirlit. Frétt af mbl.is Skýrsla vegna brunans birt síðar í mánuðinum Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Svona á að styrkja þjónustu við börnin Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Einn í meðferð á nýju meðferðarheimili Skýrsla vegna brunans birt síðar í mánuðinum Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ráðinn sviðsstjóri hjá Olís Alfreð ræddi framtíð sína í þjálfun Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Stuðla Key interest rate raised by 0.25 percentage points Júlí Heiðar og Dísa greindu frá kyninu Umræðan „Skjólið“ í ESB Fleira er matur en feitt kjöt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gul viðvörun á Vestfjörðum með sunnan hríð Nemendur taka betur í Laxness Seðlabankinn hafi misst tökin Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Ísaksskóli á leið í Kópavog Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Fimm í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar árásar Misvísandi hagvísar vandi Fjórir fá fimmtíu milljónir Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Nýjast á mbl.is » Ráðinn sviðsstjóri hjá Olís Alfreð ræddi framtíð sína í þjálfun Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Stuðla Key interest rate raised by 0.25 percentage points Júlí Heiðar og Dísa greindu frá kyninu Umræðan „Skjólið“ í ESB Fleira er matur en feitt kjöt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Nemendur taka betur í Laxness Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Seðlabankinn hafi misst tökin Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Ísaksskóli á leið í Kópavog Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Fimm í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar árásar Misvísandi hagvísar vandi Fjórir fá fimmtíu milljónir Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“

Share this article