- What: Fire safety deficiencies found at Stuðlum care facility
- Impact: Residents in care facilities may be at risk due to inadequate fire protection
Verulegir annmarkar voru á brunavörnum á meðferðarheimilinu Stuðlum þegar eldsvoði varð einum að bana í október 2024. Árin á undan höfðu verið gerðar ítrekaðar kröfur um úrbætur án þess að í þær væri ráðist. Þetta kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem rannskaði eldsvoðann. Þar segir að annmarkarnir hafi verið á brunavörnum, virkni þeirra og eftirliti. Þetta hafi haft veruleg áhrif á öryggi og mannslíf. Eldsvoðinn er sagður varpa ljósi á veikleika í því kerfi sem á að tryggja brunavarnir í mannvirkjum þar sem viðkvæmir einstaklingar eru vistaðir, einstaklingar sem eru ekki færir um að koma sér sjálfir út eða á öruggt svæði við eldsvoða. Í skýrslunni segir að Ríkiseignir, sem eiga húsnæði Stuðla, hafi ítrekað verið krafðar um úrbætur á brunavörnum. Þetta var gert bæði eftir hefðbundið eldvarnaeftirlit slökkviliðsins og við öryggis- og lokaúttektir byggingafulltrúa Reykjavíkur. Ríkiseignir réðust ekki í nauðsynlegar úrbætur. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leggur fram nokkrar tillögur að úrbótum. Sú fyrsta snýr að skipulögðu fræðsluátaki og leiðbeiningum til að auka skilning eigenda og forráðamanna á brunavörnum. Samhliða því vill stofnunin að ráðist verði í sérstakt eftirlitsátak með þeim húsum þar sem fólk kemst ekki út af eigin dáðum. Önnur tillaga snýr að því að byggingarfulltrúar komi í veg fyrir að mannvirki verði tekin í notkun hafi öryggis- og lokaúttektarvottorð ekki verið gefin út. Samkvæmt þriðju tillögu vill HMS að mannvirkjaskrá sín verði aðgengileg þeim sem hafa eftirlit með hönnunargögnum mannvirkja svo hægt sé að tryggja að brunavarnir séu í samræmi við brunahönnun. Loks leggur HMS til að framkvæmd eldvarnaeftirlits slökkviliðs verði styrkt með aukinni fræðslu, leiðbeiningum og breytingu á regluverki. Fréttin hefur verið uppfærð.