Skýrsluhöfundar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem rannsökuðu eldsvoðann á Stuðlum sem kostaði einn lífið í október 2024 segja að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannslát ef brunavarnir, þar á meðal rýmingaráætlun, hefðu verið virkar í samræmi við brunahönnun. Skýrsluhöfundar draga fram marga annmarka á húsnæðinu, eftirliti með því og brunavörnum. Brunavarnir, virkni þeirra og eftirlit með þeim voru ekki í samræmi við brunahönnun og kröfur sem gerðar eru til brunavarna og mannvirkjagerðar lögum samkvæmt. Ríkiseignir og forráðamaður bera ábyrgð á því að þetta sé í lagi. Samkvæmt skýrslunni hafði úrbóta verið krafist árum saman án þess að ráðist væri í þær. Viðbyggingin sem hýsti neyðarvistun Stuðla var tekin í notkun þrátt fyrir að uppfylla ekki skilyrði fyrir notkun. Öryggis- og lokaúttektarvottorð hafði ekki verið gefið út vegna þess að brunavörnum var áfátt. Byggingarfulltrúi hefði átt að fyrirskipa lokun og koma í veg fyrir að húsið yrði tekið í notkun án úrbóta að því er fram kemur í skýrslunni. Alvarleg frávik voru á virkni brunavarna miðað við forsendur brunahönnunar, þar á meðal rýmingaráætlunar sem er hluti af brunahönnun. Brunahólfun virkaði ekki og hurðum var ekki lokað í samræmi við brunahönnun og rýmingaráætlun. „Það hafði veruleg áhrif á hraða brunaþróunar og dreifingu reyks um neyðarvistunarrýmið,“ segir í skýrslunni. Reyklúgur opnuðust ekki og aflæsingarbúnaður dyra í flóttaleið virkjaðist ekki þegar brunaviðvörunarkerfið fór í gang. Hurðir héldust því læstar og flóttaleiðir voru óaðgengilegar. Ekki var heldur unnið í samræmi við rýmingaráætlun að öllu leyti. „Rannsókn HMS leiddi því í ljós að ef brunavarnir hefðu verið virkar í samræmi við brunahönnun, þ.m.t. rýmingaráætlun, hefði verið unnt að draga úr þeirri hættu sem skapaðist og þannig verið hægt að koma í veg fyrir mannslát.“ Eldvarnaeftirliti var ekki sinnt með fullnægjandi hætti og frá 2022 voru reglubundnar staðarskoðanir aðeins í formi gagnaöflunar og án eigin eftirlits af hálfu Ríkiseigna, eiganda húsnæðisins. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þykir hafa brugðist hratt og skipulega við eldsvoðanum.