Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skýrsla um brunann á Stuðlum dapurleg lesning – „Mjög margir sem bregðast“

Read Full Article →

Eftirlitsaðilar, Ríkiseignir og stjórnendur vanræktu brunavarnir og eftirlit á Stuðlum áður en piltur lést þar í eldsvoða, segir í nýrri skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Hægt hefði verið að koma í veg fyrir andlátið hefðu brunavarnir verið í lagi. Birgir Finnsson, slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir það skýrt að margt hefur betur mátt fara. „Þetta er náttúrulega bara dapurleg lesning, mjög margt og margir aðilar sem að bregðast.“ Hann segir ljóst að margt megi betur fara, slökkviliðið megi bæta ýmislegt og skoða þurfi mögulegar úrbætur með niðurstöður skýrslunnar til hliðsjónar. Í dag hefur Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins haft eftirlit með húsnæði á tvennan máta. Fyrst eru gögn fengin frá viðkomandi aðila og í framhaldinu framkvæmd skoðun á húsnæðinu. „Þessi gögn sem við erum að fá eru þá staðfestingar á því að ýmsir hlutir séu í lagi, sem er til dæmis brunaviðvörunarkerfi. Við skoðum ekki brunaviðvörunarkerfi. Það þarf sérstakan aðila til þess að skoða og prófa kerfið og við fáum þá þau gögn um að þessi atriði séu í lagi.“ Slökkviliðið fékk afhenda skýrslu HMS í dag þar sem ýmsar úrbótatillögur voru settar fram. Birgir segir úrbótatillögurnar allar vera til hins betra en að dapurlegt þyki að harmleikur hafi þurft að eiga sér stað til þess að brugðist verði við. „En við söknum að vísu einnar úrbótatillögu. Það er það sem snýr að því að þarna byggðu brunavarnir hússins töluvert á því hvernig starfsfólk, að starfsfólk gripi inn í. Maður er hugsi yfir því að leggja þá ábyrgð á starfsfólk og að það þurfi að reyna að finna leiðir til þess að tryggja brunaöryggi í svona húsnæði án þess að það kalli á einhver inngrip af hálfu starfsfólksins.“ Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir nýútgefna skýrslu húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um brunann sem varð á Stuðlum árið 2024 dapurlega; greinilegt sé að margir hafi brugðist.

Share this article