Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.3.2026 | 11:00 „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, segir niðurstöður skýrslu HMS um brunann á Stuðlum vera mikið áfall. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát » Fleiri tengdar fréttir Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu segir starfsmenn stofunnar hafa verið í góðri trú um að brunavarnir væru í lagi á Stuðlum er eldur braust þar út í október 2024 með þeim afleiðingum að 17 ára drengur lést og starfsmaður slasaðist. Eins og greint hefur verið frá höfðu alvarlegir annmarkar á brunavörnum, virkni þeirra og eftirliti, veruleg áhrif á öryggi og mannslíf þegar eldur braust út á Stuðlum í október 2024. Þá var ekki brugðist við ítrekuðum kröfum um nauðsynlegar úrbætur árin áður. Þetta er á meðal þeirra upplýsinga sem liggja fyrir í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem nýlega lauk rannsókn sinni á brunanum. Í skýrslunni segir að ekki liggi fyrir hvort Ríkiseignir hafi upplýst Barna- og fjölskyldustofu (BOFS), sem rekur Stuðla, um þá annmarka sem voru á brunavörnunum. Í skriflegu svari til mbl.is segir Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, niðurstöður skýrslunnar vera stofnuninni mikið áfall. Frétt af mbl.is Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Frétt af mbl.is Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Niðurstöður skýrslunnar mikið áfall Hver voru þín fyrstu viðbrögð þegar niðurstöður rannsóknar HMS lágu fyrir? „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg. Þetta rifjar auðvitað upp þann harmleik sem þarna varð. Niðurstöður skýrslunnar eru okkur mikið áfall sérstaklega í ljósi þess að starfsemin byggir að öllu leyti á að öryggismál séu í lagi og að við ættum að geta borið fullt traust til eftirlitsaðila og húseiganda,“ segir Ólöf. „Stuðlar eru lokað úrræði og öllum ætti að vera það ljóst að ekkert mætti gefa eftir í öryggismálum.“ Frétt af mbl.is Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Kom á óvart hve miklir annmarkar voru Ólöf segir það hafa komið á óvart í skýrslunni hve miklir annmarkar voru á brunavörnum, virkni þeirra og úttektum. Nefnir hún aukinheldur að röð af atvikum hefðu ekki virkað sem skyldi en í skýrslu HMS hefur t.a.m. verið bent á að hvorki opnuðust reyklúgur né virkjaðist aflæsingarbúnaður dyra í flóttaleið þegar brunavarnarkerfið fór í gang. Hafði það þær afleiðingar að hurðar héldust læstar og flóttaleiðir urðu óaðgengilegar. Frétt af mbl.is Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags „Gríðarlega alvarlegt“ Segir Ólöf það „gríðarlega alvarlegt“ að lokaúttektir á húsnæðinu hefðu ekki farið fram og að athugasemdum slökkviliðsins hafi ekki verið fylgt eftir. Í skýrslunni kemur m.a. fram að vegna annmarka á öryggismálum hafi slökkviliðið lagst gegn því að gefið yrði út öryggis- og lokaúttektarvottorð eftir breytingarnar á viðbyggingu Stuðla. Slökkviliðið vildi jafnframt ekki heimila að viðbyggingin yrði notuð fyrr en bætt hefði verið úr brunavörnum. Frétt af mbl.is Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Segir starfsmenn BOFS hafa verið í góðri trú Tölduð þið hjá BOFS að brunavarnir væru í lagi og að eftirliti hefði verið sinnt sem skyldi? „Já, starfsmenn BOFS voru í góðri trú þar sem árlega voru teknar út brunavarnir og mánaðarlega kom sérfræðingur á vegum FSRE [Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir] í eftirlit. Barna- og fjölskyldustofa og starfsfólk hennar býr ekki yfir sérfræðiþekkingu á brunavörnum en eftir okkar bestu vitneskju voru þær í lagi.“ Vissuð þið að aldrei hefði verið gefið út öryggis- og lokaúttektarvottorð á viðbyggingunni vegna annmarka á brunavörnum? „Nei, engar slíkar upplýsingar lágu fyrir hjá BOFS.“ Vissuð þið ekki að gerðar höfðu verið ítrekaðar athugasemdir af hálfu byggingarfulltrúa og slökkviliðs við ýmis öryggisatriði, þar á meðal brunavarnir? „Nei.“ Frétt af mbl.is Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt Ekkert hafi bent til þess að brunavörnum væri ábótavant Spurð hvort það sé að einhverju leyti á ábyrgð Barna- og fjölskyldustofu, sem rekur starfsemina, að gæta þess að brunavarnir séu í lagi og ganga úr skugga um að heimilt væri að nota húsnæðið segir Ólöf starfsmenn stofunnar ekki búa yfir slíkri sérfræðiþekkingu. „Ekkert í starfsemi í húsinu benti til þess að brunavörnum væri ábótavant. Eigandi mannvirkis ber ábyrgð á að mannvirkið fullnægi kröfum um brunavarnir sem fram eru settar í lögum og reglugerðum, og að brunavarnir taki mið af þeirri starfsemi sem fer fram í mannvirkinu á hverjum tíma.“ Það er skýrt í skýrslu HMS að viðbyggingin var tekin í notkun án þess að skilyrði fyrir því væru uppfyllt. Og að byggingarfulltrúi hefði átt að fyrirskipa lokun. Er ekki mjög alvarlegt að árum saman hafi börn verið vistuð í slíku húsnæði og lokuð inni þar sem þau voru í lífshættu ef eldur kæmi upp? „Þessari spurningu ætti að beina til þeirra aðila sem ábyrgðina bera, BOFS hafði ekki undir neinum kringumstæðum tök á að bregðast við, þar sem upplýsingar um brotalamir í leyfisveitingum lágu ekki fyrir. Við vorum alltaf í góðri trú að öryggismál væru í góðu lagi samkvæmt úttektum ábyrgðaraðila, að brunavörnum væri vel við haldið eins og best væri á kosið og að öll kerfi væru virk.“ Frétt af mbl.is Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Öryggisúttektir farið fram í breyttri mynd Hvernig eiga foreldrar barna í svo viðkvæmri stöðu að geta treyst því að börnin þeirra séu örugg á meðferðarheimilum BOFS, eftir að svo svört skýrsla hefur verið birt? „Öryggisúttektir hafa farið fram á húsnæðinu í breyttri mynd og núna eru að lágmarki 5 starfsmenn í húsi hverju sinni. Verkfræðistofa gerði úttektir á öllum öryggisþáttum eftir brunann á Stuðlum og hluti af því var að fjölga starfsmönnum á hverri vakt þó svo færri börn væru í húsi. Í skýrslu HMS koma fram tillögur að úrbótum sem grípa þarf til í kjölfar eldsvoðans. Við treystum því að það verði gert en gerum auk þess allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi okkar skjólstæðinga og einnig starfsfólks.“ Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nálægt Íslandsmetinu á fyrsta heimsmeistaramótinu Beint: Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar Slot lofar endurkomu Isak „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Súrrealískt að sjá Paul McCartney baksviðs Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Maðurinn sem léði Saka vængi Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Gestir kvarta undan ólykt „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Vill gera glæpamönnum lífið leitt Næsta lægð nálgast síðdegis Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál Haldið „svanvangs í för langa“ éljasaman útmánuðinn Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Nálægt Íslandsmetinu á fyrsta heimsmeistaramótinu Beint: Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar Slot lofar endurkomu Isak „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Súrrealískt að sjá Paul McCartney baksviðs Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Byggingin hönnuð til að gefa eftir Holtavörðuheiði enn lokuð Eru að leggja Íran í rúst: Veit ekki hver stjórnar Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Gestir kvarta undan ólykt „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Vill gera glæpamönnum lífið leitt Næsta lægð nálgast síðdegis Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál Haldið „svanvangs í för langa“ éljasaman útmánuðinn Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum

Share this article