Innlent | mbl | 18.3.2026 | 11:01 | Uppfært 11:23 „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Vihjálmur Birgisson, formaður Starfgreinasambands Íslands. Samsett mynd/ Guðmundur Hilmarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Ömurlegt fyrir okkur í Eflingu“ Grafalvarleg staðan heimagert vandamál Seðlabankinn hafi misst tökin Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Misvísandi hagvísar vandi » Fleiri tengdar fréttir „Ég er eiginlega alveg orðlaus yfir þessu og þetta er enn einn svarti dagurinn fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu.“ Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og formaður Verkalýðsfélags Akraness, við mbl.is þegar leitað var viðbragða hans um þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, eru því 7,50 prósent. Sjálfur reiknaði hann með því að stýrivextirnir héldust óbreyttir. Hann segir að það sé rangt þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi sagt að vextir hafi lækkað um tvö prósent og vísar til þess að verðtryggðir húsnæðisvextir hafi farið úr fjórum prósentum í fimm þrátt fyrir að stýrivextir hafi farið úr 9,25 prósentum í 7,25 prósent áður en þeir voru hækkaðir aftur í morgun. Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig „Allt þetta sem við lögðum á okkur, íslenskt launafólk og við í breiðfylkingunni, sem tókum áhættu sem fólgin var í því að semja með hófstilltum hætti til langs tíma, sem gert var til að skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta, er nú allt farið í þveröfuga átt,“ segir Vilhjálmur. Peningastefnunefnd Seðlabankans segir í yfirlýsingu að flestir hagvísar beri nú vitni um hægari efnahagsumsvif. Þrátt fyrir það hafi verðbólga aukist á ný og mælist nú 5,2% annan mánuðinn í röð. Þar segir enn fremur að nokkru leyti megi rekja það til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa og þá hafi bæst við áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum vinnumarkaði í byrjun árs. Virðist engin róa í sömu átt „Það virðist vera að ekki einn einasti aðili í íslensku samfélagi sé tilbúinn að róa í þá átt sem lagt var upp með og það er ofboðslega miður. Það virðist vera afskaplega lítill vilji til að sporna við þessu ástandi, hvort það eru stjórnvöld, sveitarfélög eða verslun og þjónusta. Það virðist enginn róa í sömu átt og afleiðingarnar eru hrikalegar fyrir íslensk heimili,“ segir Vilhjálmur. Hann segir mikilvægt að átta sig á því hvað þessi hækkun á stýrivöxtum þýði. „Fyrirtækin á Íslandi, viðskiptahagkerfið, skuldar 7.600 milljarða samkvæmt Hagstofunni og til einföldunar ef 0,25 prósenta hækkun fer á allar þessar skuldir fyrirtækja þá eru það 19 milljarðar í aukningu á fjármagnskostnað fyrirtækja. Heimilin í landinu skulda 3 þúsund milljarða og 0,25 hækkun stýrivaxta þýðir 7,5 milljarða aukningu á heimilin,“ segir hann. Frétt af mbl.is Seðlabankinn hafi misst tökin Peningastefnunefndin segir í yfirlýsingu sinni að aukin hætta sé á því að endurskoðunarákvæði kjarasamninga muni virkjast síðar á árinu sem gæti aukið enn frekar á undirliggjandi verðbólguþrýsting. „Horfurnar eru ekki góðar. Líkurnar á því að kjarasamningar muni losna í september eru orðnar 99,9 prósent miðað við það ástand sem ríkir, ekki bara hér á landi heldur víða um veröld,“ segir Vilhjálmur. Hann bendir á að verðbólgan hafi verið komin af stað áður en stríðið skall á í Mið-Austurlöndum en stríðið þar geri ástandið vont verra. Ungt fólk á ekki möguleika á að komast inn í húsnæðismarkaðinn „Þetta hefur ekkert verið að virka. Við getum tekið dæmi að það seljast nánast engar íbúðir. Það kemst enginn í gegnum greiðslumat. Ungt fólk á ekki möguleika á að komast inn í húsnæðismarkaðinn og þetta er ástand sem er ekki hægt að bjóða einni einustu þjóð upp á, að hér sé heil kynslóð sem kemst ekki inn á húsnæðismarkaðinn og er föst inni hjá foreldrum sínum og er föst í okurleigu og öðru slíku,“ segir Vilhjálmur. Hann bendir einnig á eitt vandamál í íslensku samfélaginu sem séu lífeyrissjóðirnir. „Við erum með lífeyrissjóði sem eru með 5,500 milljarða inni í íslensku hagkerfi sem vilja fá 3,5 prósenta raunávöxtun sem þýðir nafnvexti upp á 9 prósent. Þetta gerir það að verkum að vaxtastigið er með þessum hætti enda eiga lífeyrissjóðirnir orðið 55 prósent í öllum hlutabréfum. Þeir eiga í dagvöruverslunum, olíufélögunum, tryggingarfélögunum og krafa þeirra er að fá meiri arðsemi í dag heldur en þeir fengu í gær en það eru neytendur sem þurfa að standa undir þeirri arðsemi.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Ömurlegt fyrir okkur í Eflingu“ Grafalvarleg staðan heimagert vandamál Seðlabankinn hafi misst tökin Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Misvísandi hagvísar vandi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fara fram á rúmlega sjö ára dóm yfir Høiby Luther rís á ný Grafalvarleg staðan heimagert vandamál Ferlinum lokið hjá Schmeichel? „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Umræðan „Skjólið“ í ESB Hlustum á lögregluna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Vörpuðu öflugum sprengjum nærri Hormússundi Gul viðvörun á Vestfjörðum með sunnan hríð Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Ísaksskóli á leið í Kópavog Seðlabankinn hafi misst tökin Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Misvísandi hagvísar vandi Fimm í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar árásar Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Nýjast á mbl.is » Fara fram á rúmlega sjö ára dóm yfir Høiby Luther rís á ný Grafalvarleg staðan heimagert vandamál Ferlinum lokið hjá Schmeichel? „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Umræðan „Skjólið“ í ESB Hlustum á lögregluna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Stuðla Fara fram á rúmlega sjö ára dóm yfir Høiby Íranar staðfesta andlát Larijani Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Ísaksskóli á leið í Kópavog Seðlabankinn hafi misst tökin Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Misvísandi hagvísar vandi Fimm í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar árásar Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“