Úrslitaleikurinn varð eins og köld vatnsgusa fyrir bandaríska liðið. Margar af stærstu stjörnum MLB-deildarinnar voru mættar til að vinna mótið á heimavelli, eftir að hafa tapað úrslitaleik síðustu keppni fyrir þremur árum. Leikmenn Venesúela eru reyndar engir viðvaningar og allir nema sex í þrjátíu manna hópi þeirra spila í MLB-deildinni. Eugenio Suarez skoraði sigurstig Venesúela í lok 9. lotu og allt ætlaði um koll að keyra. „Enginn trúði á Venesúela en í dag vinnum við keppnina. Þetta er fögnuður fyrir alla venesúelsku þjóðina,“ sagði Suarez eftir sigurinn. Á leið sinni í úrslitaleikinn hafði Venesúela einnig slegið út ríkjandi meistarana frá Japan í fjórðungsúrslitum. Sigurinn gaf Venesúela um leið sæti í hafnaboltakeppni Ólympíuleikanna 2028 sem verða í Los Angeles. Sterk undiralda leiksins Það er óhætt að segja að samskipti Bandaríkjanna og Venesúela séu snúin um þessar mundir eftir að Bandaríkin réðust inn í Venesúela og námu forseta landsins á brott í janúarbyrjun. Margir leikmanna Venesúela, ásamt fjölda stuðningsmanna þeirra í Miami, vöfðu sig í fána þjóðarinnar þegar sigurinn var í höfn og í verðlaunaafhendingunni.