Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkin og Venesúela endurnýja stjórnmálasambandið

Read Full Article →

Bandaríkin og Venesúela ætla að endurnýja stjórnmála- og ræðissamband sitt samkvæmt tilkynningum frá utanríkisráðuneytum beggja ríkja. „Þetta skref er hluti sameiginlegrar viðleitni okkar til að auka stöðugleika í Venesúela, tryggja efnahagsbata og styrkja pólítíska sátt í landinu,“ segir í tilkynningu Bandaríkjamanna. Utanríkisráðuneyti Venesúela tekur í svipaðan streng og segir endurnýjuð tengsl hvort tveggja jákvæð og gagnleg báðum ríkjum. Greinendur segja ákvörðunina til marks um þíðu í samskiptum ríkjanna eftir að Bandaríkjaher steypti forsetanum Nicolas Maduro og flutti til Bandaríkjanna. Jafnframt verði stutt við Venesúela á umbreytingartímum sem að lokum skapi grundvöll fyrir lýðræðislegum kosningum segir utanríkisráðuneytið bandaríska. Innanríkisráðherrann Doug Burgum er nýkominn úr tveggja daga ferð til Venesúela og kvað forsetann Delcy Rodriguez hafa heitið að tryggja öryggi tuga erlendra námufyrirtækja sem vilja fjárfesta þar. Hann sagði fundi þeirra hafa verið stórkostlega jákvæða. Auk þess að liggja á einhverjum stærstu olíulindum heims er Venesúela ríkt af mikilvægum steinefnum, demöntum, gulli, báxíti og öðrum efnum sem notuð eru við framleiðslu tölva og símtækja.

Share this article