Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hætta að taka á móti rúmfreku rusli

Read Full Article →

Endurvinnslustöðvar Sorpu í Janfaseli í Reykjavík og á Dalvegi í Kópavogi munu hætta að taka móti rúmfreku rusli þann 31. mars nk. vegna framkvæmda. Í tilkynningu frá Sorpu segir að ruslið sem um ræðir sé til að mynda múrbrot, timbur, innréttingar, flísar og ónýt húsgögn. Aðeins verður tekið á móti almennu rusli sem fellur til frá heimilum á þessum stöðvum og verða stöðvarnar í Jafnaseli og á Dalvegi skilgreindar sem litlar endurvinnslustöðvar sem taka á móti 30 flokkum í stað 40 eins og undanfarin ár. Áfram verður tekið á móti öllu rusli á stóru endurvinnslustöðvum Sorpu í Ánanaustum, Blíðubakka, Breiðhellu og Sævarhöfða. Sorpa hefur jafnframt lengt opnunartíma endurvinnslustöðva sinna en þær opna nú allar kl. 09:00 og eru opnar til 19:00 alla daga nema endurvinnslustöðinni í Blíðubakka sem opnar kl. 12:00 og lokar kl. 18:30. Sjá einnig Bjóða leigjendum sendibíla upp á endurgreiðslu „Markmið þessara breytinga er að einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu á starfssvæði stöðvanna á Dalvegi og í Jafnaseli. Endurmörkun stöðvanna byggir á vinnu starfsfólks SORPU og sveitarfélaganna sem að henni standa, og stjórnar SORPU. Stöðvarnar hafa um nokkra hríð verið of litlar til að taka á móti öllum þeim gestum sem á þær koma og þarf því að takmarka þann fjölda flokka sem tekið verður á móti á þeim. Stöðvarnar hafa verið í rekstri frá árinu 1991 og var þá ætlað að taka á móti átta flokkum,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. Eftirfarandi flokkar verða teknir út við Dalveg og Jafnasel og þurfa íbúar á höfuðborgarsvæðinu að fara með þá flokka á stórar endurvinnslustöðvar: Málað timbur Ómálað timbur Hjólbarðar Flísar Hreinlætistæki Rúðugler Gifs Möl og sandur Heyrúlluplast Grófur úrgangur eins og ónýt húsgögn og rúmdýnur Stórir málmhlutir eins og ónýt reiðhjól og gasgrill

Share this article