Innlent | Morgunblaðið | 21.3.2026 | 12:00 Sorpa lokar á Sævarhöfða Sorpa bregst við vanda með því að fækka móttökustöðvum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sorphirða Markmiðum um úrgang ekki náð: Hafa tvo mánuði Hætta að taka við „rúmfreku“ rusli á tveimur stöðum Sorpa tekur í notkun bílnúmeralesara Tóku til í rekstrinum Stofna dótturfélög vegna ákvörðunar ESA » Fleiri tengdar fréttir Móttökustöðvum Sorpu sem taka á móti öllum flokkum fækkar um þrjár þegar ný móttökustöð við Lambhagaveg verður opnuð næsta sumar. Búið er að tilkynna þjónustuskerðingu á Dalvegi og í Jafnaseli um næstu mánaðamót auk þess sem Dalvegi verður lokað í árslok. Gunnar Dofri Ólafsson upplýsingastjóri Sorpu segir að markmiðið sé að einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu þar sem stöðvarnar séu of litlar. Frétt af mbl.is Ný endurvinnslustöð tekur á sig mynd Mest skerðing þjónustu í Breiðholti og Kópavogi Eins og borgarbúar þekkja myndast langar biðraðir um helgar við Dalveg, Jafnasel og Sævarhöfða og er Gunnar spurður hvers vegna verið sé að skerða þessa þjónustu? „Þetta kemur til vegna þeirrar stöðu að stöðvarnar eru í rauninni orðnar of litlar til að sinna öllu því sem hefur verið lagt á þær.“ Er þá svarið að fækka þeim? „Við erum ekki að fækka stöðvum, við erum að fækka flokkum. Þessar stöðvar sem voru byggðar til að taka á móti átta flokkum, þegar þær voru opnaðar 1991, taka núna við 40 flokkum og það er meira en þær ráða við og því erum við að „skala“ þær niður í það að geta tekið frá daglegum rekstri heimila. Þeir sem eru í framkvæmdum þurfa að fara á stóru stöðvarnar.“ En með þessu eruð þið að minnka þjónustuna á svæði sem tekur yfir bæði Breiðholt og Kópavog og auka á umferð. „Já, þeir sem eru í framkvæmdum þurfa að fara á Sævarhöfða eða Lambhagann þegar hann verður tilbúinn.“ Frétt af mbl.is Hætta að taka við „rúmfreku“ rusli á tveimur stöðum Spurður hvernig hægt sé að skerpa á þjónustunni á Sævarhöfðanum þegar raðirnar þar ná jafnvel einum kílómetra, segir Gunnar Dofri að Sævarhöfðanum verði lokað þegar Lambhagastöðin tekur til starfa í sumar. Á líka að loka Sævarhöfða? „Já, það hefur legið fyrir í mörg ár. Sævarhöfða verður lokað þegar Lambhagastöðin verður opnuð. Við erum að bregðast við vanda með því að færa þjónustu og gera hana skilvirkari á minni stöðvunum og skerpa hana á stóru stöðvunum.“ Hvenær verður Lambhagi tilbúinn? „Í sumar.“ Þið ætlið að loka Jafnaseli og Dalvegi áður en hann verður opnaður. „Við erum ekki að loka.“ Þið eruð að takmarka þjónustu. „Við horfum þetta ekki sömu augum, vegna þess að við lítum svo á að í dag séu þessar stöðvar ekki færar um að veita þá þjónustu sem hefur verið í boði áður. Það er of mikil umferð á þeim og við höfum áhyggjur af öryggi, bæði starfsfólks og gesta á stöðvunum, þegar of mikið er að gera þarna. Þannig að við fórum í þessar aðgerðir til að skerpa á þjónustunni og þetta þekkist mjög vel í þjónustuveitingu og það er ólíkt vöruúrval í matvöruverslunum eftir því hvað þær eru stórar.“ Við þessar breytingar fækkar um eina stöð þegar Dalvegur og Sævarhöfði leggjast af og ný bætist við á Lambhagavegi. Þær stöðvar sem taka á móti öllum flokkum verða í Ánanaustum, Blíðubakka, Breiðhellu og á Lambhagavegi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sorphirða Markmiðum um úrgang ekki náð: Hafa tvo mánuði Hætta að taka við „rúmfreku“ rusli á tveimur stöðum Sorpa tekur í notkun bílnúmeralesara Tóku til í rekstrinum Stofna dótturfélög vegna ákvörðunar ESA » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kristrún kýs „já“ í ágúst Jafnaði Íslandsmetið aðeins viku seinna Beint: Flokkráðsfundur Sjálfstæðisflokksins Vinir heiðruðu Hjálmar Sorpa lokar á Sævarhöfða Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Maðurinn sem léði Saka vængi Ryksprenging í tómum tanki Byggingin hönnuð til að gefa eftir Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Gestir kvarta undan ólykt Vill gera glæpamönnum lífið leitt „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Næsta lægð nálgast síðdegis Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Búið að opna heiðina Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Kristrún kýs „já“ í ágúst Jafnaði Íslandsmetið aðeins viku seinna Beint: Flokkráðsfundur Sjálfstæðisflokksins Vinir heiðruðu Hjálmar Sorpa lokar á Sævarhöfða Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Chuck Norris látinn Öllu millilandaflugi aflýst þar til síðdegis Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Gestir kvarta undan ólykt Vill gera glæpamönnum lífið leitt „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Næsta lægð nálgast síðdegis Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Búið að opna heiðina Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum