Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

VR hefur undirbúning fyrir kjaraviðræður

Read Full Article →

VR, stærsta stéttarfélag landsins, hefur hafið undirbúning fyrir mögulegar kjaraviðræður í haust. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir þetta í færslu á Facebook og bætir við að trúnaðarráð félagsins hafi komið saman í gær. „Allar líkur eru á að forsendur kjarasamninga bresti í haust og það óháð olíunni, sem mun svo sannarlega standa undir nafni og vera olía á eld í stöðunni. Besta niðurstaðan væri einhvers konar samstillt átak, en bæði stjórnvöld og stór fyrirtæki hafa ekki staðið við sitt og þá er traustið lítið.“ „Þær vonir eru endanlega brostnar.“ Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Péturs­son, vara­seðla­banka­stjóri peningastefnu, sögðu á kynningarfundi Seðlabankans í morgun að einn helsti verðbólguþrýstingurinn hér á landi á síðustu misserum megi rekja til mikilla launahækkana, sem hafi verið umtalsvert meiri en í nágrannalöndum okkar. Sjá einnig „Þetta gerist ekki hjá nokkurri annarri þjóð“ Halla segir núgildandi kjarasamningar hafa verið gerða eftir forskrift Seðlabankans, innan þess svigrúms sem hann áætlaði. Hún segir launafólk hafa fallist á lágar launahækkanir á tímum hárrar verðbólgu í von um að verðbólga myndi lækka og stýrivextir líka. „Þær vonir eru endanlega brostnar,“ skrifar Halla. „Fyrirtækin áttu að halda aftur af sér í verðhækkunum og hið opinbera átti að hemja gjaldskrárhækkanir og takast á við húsnæðismálin, sem eru stærsta viðfangsefnið. Hvorugt hefur gengið eftir, launafólk sat eitt eftir og hefur greitt þetta ástand dýru verði. Skuldarar, leigjendur og barnafólk bera byrðarnar á meðan fjármagnseigendur eru varðir og hækkun stýrivaxta gerir ekkert annað en að kreista viðkvæma hópa enn meira, hópana sem er búið að kreista í þrot.“ Halla segir að hækkun stýrivaxta muni ekki stöðva verðbólgu í landinu. Hún telur hættu á að þeir geri illt verra. „Vandinn sem verkalýðshreyfingin stendur frammi fyrir er að hún hefur ekkert annað en kjarasamninga til að reyna að halda í við verðbólgu og óðastýrivexti. Stjórnvöld virðast ekki ætla að beita ríkisfjármálunum til að taka á stöðunni og Seðlabankinn hótar að beita sínu meginstýritæki, stýrivöxtum, af enn meiri þunga, með tilheyrandi kostnaði fyrir launafólk.“ Sjá einnig Hækka vexti ef forsenduákvæðið verður virkjað Þórarinn ítrekaði á fundinum í morgun skilaboð peningastefnunefndarinnar um að uppsagnarákvæðið verður virkjað þá mun það líklega hafa í för með sér að nefndin muni hækka stýrivexti.

Share this article