Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

For­maður VR kallar eftir verðþaki á olíu

Read Full Article →

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, stærsta stéttarfélagsins landins, kallar eftir því að innleitt verði „einhvers konar verðþak á olíu“. Í færslu á Facebook segir hún að ný mæling á vísitölu neysluverðs benda til þess að olíufyrirtækin séu byrjuð að stunda forvirkar hækkanir. „Þau skila heimsmarkaðsverðhækkunum löngu áður en olíutunnurnar geta náð landi. Það er ekki hægt að bíða með að allar þessar hækkanir skelli á okkur, það verður að innleiða einhvers konar verðþak á olíu.“ Sjá einnig Verðbólga upp í 5,4% Hún bendir á að á aðalfundi VR í gærkvöldi hafi verið samþykkt ályktun þar sem hvatt er til þess að skoða að beita verðþaki á meðan verið sé að sigla í gegnum orkukreppu í hieminum, ekki síst þegar kemur að olíu. Að öðrum kosti muni hækkun olíuverðs „flæða beint og óbeint inn í verðlag og valda aukinni verðbólgu og þaðan yfir í húsnæðiskostnað fólks í formi vaxta og verðbóta”. Vænlegt að leita leiða til að afstýra hörðum kjaradeilum Í ályktuninni segir að VR sé vel undirbúið og tilbúið til kjaraviðræðna í haust, og er þar vísað til þess að forsenduákvæði í langtíma kjarasamningum gæti virkjast ef verðbólga mælist yfir 4,7% í næstkomandi ágústmælingu Hagstofunnar. Sjá einnig VR hefur undirbúning fyrir kjaraviðræður „Aðalfundur telur þó vænlegt að leita allra leiða til að afstýra hörðum kjaradeilum. Til að svo megi verða þurfa atvinnurekendur og stjórnvöld að axla sína ábyrgð og viljann þarf að sýna í verki næstu mánuði.“ VR hvetur stór fyrirtæki til að draga úr arðsemiskröfum sínum. Halla nefnir bankana sérstaklega í þeim efnum. VR kallar einnig eftir að sveitarfélög afturkalli háar gjaldskrárhækkanir, einkum á hita, rafmagni og leikskólagjöldum. Halla segir í téðri færslu að það sé jafnframt sláandi að matvara haldi áfram að hækka milli mánaða í vísitölu neysluverðs. „Við höfum aldrei fengið fullnægjandi skýringar á því hvers vegna matvara hefur þurft að hækka mánuð eftir mánuð yfir langt tímabil.“

Share this article