Innlent | mbl | 26.3.2026 | 14:21 „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán » Fleiri tengdar fréttir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir nýja mælingu á vísitölu benda til þess að olíufyrirtæki séu byrjuð að stunda forvirkar hækkanir. Ekki sé hægt að bíða með að þær hækkanir skelli á Íslandi og að innleiða verði verðþak á olíu. Þetta skrifar Halla í færslu á Facebook. Frétt af mbl.is Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Aldrei fengið fullnægjandi skýringar „Ný mæling á vísitölu bendir til þess að olíufyrirtækin séu byrjuð að stunda forvirkar hækkanir; þau skila heimsmarkaðsverðhækkunum löngu áður en olíutunnurnar geta náð landi. Það er ekki hægt að bíða með að allar þessar hækkanir skelli á okkur, það verður að innleiða einhvers konar verðþak á olíu. Það er jafnframt sláandi að matvara heldur áfram að hækka milli mánaða. Við höfum aldrei fengið fullnægjandi skýringar á því hvers vegna matvara hefur þurft að hækka mánuð eftir mánuð yfir langt tímabil,“ skrifar Halla. Frétt af mbl.is „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Hægt að grípa til aðgerða Hún segir þó góðu fréttirnar vera að hækkunin sé ekki á jafn breiðum grunni og í síðustu mælingu og að hægt sé að grípa til aðgerða til að lágmarka skaðann. Stöðva eigi verðhækkanir og afturkalla gjaldskrárhækkanir og þá segir formaðurinn bankana og stóru fyrirtækin, sem hafi verðmótandi áhrif, að draga úr arðsemiskröfum sínum tímabundið. „Þetta, ásamt því að stjórnvöld láti af atlögu sinni gegn réttindum vinnandi fólks og keyri á umbætur í húsnæðismálum, getur skapað fyrirsjáanleika fyrir fólk og fyrirtæki, að því marki sem hann er mögulegur í alþjóðlegu umróti, og þannig haft jákvæð áhrif inn í haustið þegar forsendur kjarasamninga bresta.“ Bendir Halla á að á aðalfundi VR í gærkvöld hafi verið samþykkt ályktun sem taki á þessum þáttum og leggi línur fyrir lausnamiðaða nálgun í erfiðri stöðu. „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd við þessar aðstæður.“ Frétt af mbl.is „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Skorað á stjórnvöld Í ályktun VR er bent á að félagsfólk VR hafi tekið áhættu þegar það undirgekkst kjarasamninga með lágum launahækkunum árið 2024. Það hafi verið gert í trausti þess að stjórnvöld myndu standa við gefin fyrirheit og að fyrirtæki haldi aftur af sér í verðhækkunum en að hvorugt hafi raungerst. Þar er jafnframt áréttað að félagið sé vel undirbúið og tilbúið til kjaraviðræðna í haust og muni hvergi hvika í hagsmunabaráttu sinni fyrir félagsfólk. Þó sé talið vænlegt að leita allra leiða til að afstýra hörðum kjaradeilum en til að svo megi verða þurfi atvinnurekendur og stjórnvöld að axla sína ábyrgð. Þá er skorað á stjórnvöld í ályktuninni að leiða aðila saman til lausnamiðaðs samtals um vegin fram á við í erfiðri stöðu. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ Úr Garðabænum í Úlfarsárdalinn Segjast hafa drepið um 700 úr röðum Hisbollah Ferðataskan sem allir eru að tala um Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Vel mannað að beiðni almannavarnarnefndar „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Katla minnir á sig „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ Úr Garðabænum í Úlfarsárdalinn Segjast hafa drepið um 700 úr röðum Hisbollah Ferðataskan sem allir eru að tala um Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Strætó stöðvar allan akstur á höfuðborgarsvæðinu Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Farið að draga í skafla á þekktum stöðum Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Katla minnir á sig „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl