Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Halla jákvæðari gagnvart aðgerðunum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.4.2026 | 12:05 Halla jákvæðari gagnvart aðgerðunum Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. mbl.is/Eyþór Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Þrátt fyrir að hljóðið hafi verið þungt í verkalýðsleiðtogum sem rætt var við á föstudag vegna tímabundinna efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar eru þeir ekki allir á sama máli. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segist í samtali við mbl.is telja það skynsamlegt að setja verðþak á olíu og VR hafi kallað eftir því að það yrði gert. Sólveig Anna Jónsdóttur, formaður Eflingar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, gagnrýndu aðgerðirnar harðlega í samtali við mbl.is á föstudaginn. Finnbjörn Hermannsson, forseti ASí, sagði þær ekki efstar á óskalista sínum. Frétt af mbl.is Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Vítavert að bregðast ekki við Halla telur mikilvægt að átta sig á því að ekki hafi verið um sérstakar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar að ræða heldur hafi hún aðeins verið að kynna sína atvinnustefnu, bregðast við orkukrísunni sem er að skapast í Mið-Austurlöndum og opna á þríhliða samtal um aðgerðir svo kjarasamningar haldi í haust. Halla er þó eins og áður segir ánægð með þær aðgerðir sem gripið er til varðandi olíu. „Það væri vítavert að láta olíukrísuna flæða inn í verðbólguna úr öllum áttum,“ segir Halla. Frétt af mbl.is „Var kannski ekki efst á óskalistanum hjá okkur“ Umræðan nýbyrjuð og ekki búin Gagnrýndu Sólveig Anna og Vilhjálmur meðal annars að ekki væri gripið til sérstakra aðgerða fyrir efnaminni hópa. Halla segir samtal um slíkar aðgerðir þó enn í gangi. „Ég tel ekkert að verðlagstakmarkanir á olíu séu einhver heildarpakki, þetta eru bara aðgerðir sem er gripið til núna af því það þarf að gerast núna. Svo setjumst við yfir hin málin. Ég hef lagt áherslu á þá hópa sem tekið hafa á sig þyngsta höggið vegna ástandsins í efnahagsmálum, þá er ég að horfa á barnafólk, skuldara og leigjendur. Við höfum sett þessa hópa á oddinn, þessi hávaxtastefna slær ákveðna hópa og lætur aðra í friði. Þessi umræða er nýbyrjuð og er ekki búin.“ Frétt af mbl.is Væri ekki leyfilegt innan ESB Setur út á gildistímann Lækkunin á virðisaukaskattinum á eldsneyti úr 24% í 11% tekur gildi 1. maí og rennur út 31. ágúst en þann 1. september virkjast forsenduákvæðis kjarasamninga sem gerir aðilum þeirra það kleift að segja upp ef verðbólga mælist yfir 4,7%. Halla er ekki á því að þessi aðgerð muni ein og sér hafa áhrif á kjarasamninga. „Allt benti til að verðbólga yrði yfir 4,7% óháð olíunni. Olía er þó að gera ástandið verra og þessi aðgerð dempar fyrst og fremst höggið. Það gætir misskilnings með þetta, það virðast margir halda að þetta snúist bara um bensínverð, og þá sem eiga dísil- eða bensínbíla, en þetta gerir það ekki, olían kemur inn í verðbólguna úr mörgum ólíkum áttum og endar að lokum í húsnæðisláninu og húsaleigunni þinni.“ Setur Halla þó út á gildistímann en eins og áður segir gildir lækkunin til 31. ágúst. „Auðvitað þurfa svona aðgerðir að vera tímabundnar, það er verið að veita skattaafslátt og tryggja að olíufyrirtækin stingi því ekki í eigin vasa. Það að tímasetningin sé út ágúst gefur til kynna að þetta hangi saman við kjarasamninga. Það þarf að endurskoða þetta reglulega og rétti tímapunkturinn snýst um ástand mála í Mið-Austurlöndum en ekki ástand kjarasamninga á Íslandi, ég hef gagnrýnt þetta og tel að þetta þurfi að endurskoða.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Á fjórða þúsund hafa verið drepin í stríðinu Halla jákvæðari gagnvart aðgerðunum Misjafnt tíðarfar á veðurstofuvetri Lætur af störfum Listin að: Bjóða upp á ostabakka Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Styrkir samtökin um 25 milljónir Aðgerðunum fálega tekið Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Mest lesið Í gær Í vikunni Væri ekki leyfilegt innan ESB Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Til þriggja Kanaríeyja í einni ferð Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Sjö á bráðamóttöku eftir árekstur Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Nýjast á mbl.is » Á fjórða þúsund hafa verið drepin í stríðinu Halla jákvæðari gagnvart aðgerðunum Misjafnt tíðarfar á veðurstofuvetri Lætur af störfum Listin að: Bjóða upp á ostabakka Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áður grunuð og rannsökuð vegna umsáturseineltis „Var kannski ekki efst á óskalistanum hjá okkur“ Kostnaður við endurreisn óljós Aðgerðunum fálega tekið Mest lesið Í gær Í vikunni Væri ekki leyfilegt innan ESB Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Til þriggja Kanaríeyja í einni ferð Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Sjö á bráðamóttöku eftir árekstur Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu

Share this article