Innlent | mbl | 1.5.2026 | 15:13 Kjarasamningar muni losna ef ekkert breytist Halla Gunnarsdóttir, formaður VR flutti ræðu fyrir viðstadda í Reykjavík á 1. maí. mbl.is/ÓIafur Árdal Setja bókamerki Formaður VR , Halla Gunnarsdóttir , sendi stjórnvöldum og atvinnulífi skýr skilaboð í ræðu sinni á v erkalýðsdeginum í dag, þar sem hún varaði við versnandi kjörum launafólks og útilokaði ekki harðari aðgerðir á næstu misserum. Í ræðunni lagði hún áherslu á að verkalýðshreyfingin stæði á sterkum grunni en væri jafnframt undir þrýstingi, bæði á alþjóðavísu og hérlendis. Hún gagnrýndi þróun þar sem réttindi launafólks væru veikt og opinber þjónusta skorin niður, þrátt fyrir að fjármunir væru til staðar í samfélaginu. Að hennar mati væru auðlindir í auknum mæli færðar frá almenningi til þeirra efnameiri. Nokkur fjöldi var samankominn í miðbænum. mbl.is/Ólafur Árdal Framfærslukostnaður hækkað verulega Halla sagði stöðuna á Íslandi endurspegla alþjóðlegar áskoranir, en lagði áherslu á að verkalýðshreyfingin hérlendis myndi standa vörð um réttindi og halda áfram að berjast fyrir bættum kjörum. Hún undirstrikaði að kjarabarátta snerist ekki aðeins um laun heldur einnig um framfærslukostnað sem hefði hækkað verulega á undanförnum árum. Í ræðunni vísaði hún sérstaklega til hækkandi kostnaðar vegna húsnæðis, matvöru og opinberra gjalda og sagði að laun hefðu ekki haldið í við þá þróun. Þá gagnrýndi hún háa stýrivexti og aðgerðir stjórnvalda sem hún sagði bitna á skuldurum og leigjendum. Fyrirtæki, sveitarfélög og stjórnvöld bregðist við Formaðurinn varaði við því að núverandi efnahagsástand gæti leitt til þess að kjarasamningar losni í haust ef ekki yrði brugðist við. Hún sagði verkalýðshreyfinguna reiðubúna til að krefjast launahækkana til að tryggja að kaupmáttur haldist, nema að fyrirtæki, sveitarfélög og stjórnvöld grípi til aðgerða. Í því samhengi setti hún fram kröfur um að fyrirtæki hætti verðhækkunum og dragi úr arðsemiskröfum, að sveitarfélög endurskoði gjaldskrárhækkanir og að stjórnvöld standi við loforð um úrbætur á húsnæðismarkaði og stuðning við barnafjölskyldur. Á kostnað almennings Halla gagnrýndi einnig efnahagsstefnu sem hún sagði verja hagsmuni þeirra efnameiri á kostnað almennings og hvatti til breytinga á þeirri nálgun. Hún lauk ræðu sinni á því að leggja áherslu á samstöðu verkalýðshreyfingarinnar og mikilvægi þess að verja réttindi komandi kynslóða. „Við stöndum hér. Við stöndum saman,“ sagði hún og bætti við að sameinuð væri hreyfingin sterkust. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kjarasamningar muni losna ef ekkert breytist Frábær endurkoma Eyjakvenna Myndir: Haldið upp á 1. maí víða Pop-up streetwear sale draws a large queue in Reykjavík Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Gallup Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ „Ég segi nei“ „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Neitar að klæðast skotheldu vesti eftir banatilræði Mest lesið Í gær Í vikunni Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Herjólfur III verður klár í næstu viku Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Kjarasamningar muni losna ef ekkert breytist Frábær endurkoma Eyjakvenna Myndir: Haldið upp á 1. maí víða Pop-up streetwear sale draws a large queue in Reykjavík Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Gallup Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ „Þetta er litli föstudagur“ Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Meira safnast en vonir stóðu til en spáin góð Mest lesið Í gær Í vikunni Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Herjólfur III verður klár í næstu viku Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás