Innlent | mbl | 26.3.2026 | 11:59 „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán „Dýrt að sitja uppi með óseldar íbúðir“ » Fleiri tengdar fréttir „Þetta eru einfaldlega vonbrigði og eykur enn líkurnar á því að aðilar á vinnumarkaði þurfi að setjast niður saman og fara yfir stöðuna í haust þegar skoðunarpunktur kjarasamninga rennur upp,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um nýjustu verðbólgumælingar. Verðbólgan mælist nú 5,4% og eykst á milli mánaða en hún mældist 5,2% í lok febrúar. Frétt af mbl.is Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Verðbólgan á breiðum grunni „Auðvitað hafa áhyggjur farið vaxandi af því að þetta gæti gerst. Við sáum það við síðustu vaxtaákvörðun að því var haldið opnu að haldið yrði áfram að hækka vexti ef það myndi ekki duga að bregðast við eins og gert var.“ Bjarni bendir á að enn sé mikil óvissa varðandi þróun olíuverðs. Hins vegar sjáist í mælingu Hagstofunnar að ýmsir innlendir liðir séu einnig að hækka, eins og matur og óáfengir drykkir, og að verðbólgan sé því á nokkuð breiðum grunni. Þá sé um vonbrigði að ræða sem auki líkurnar á því að aðilar á vinnumarkaði þurfi að setjast niður og fara yfir stöðuna í haust þegar skoðunarpunktur kjarasamninga rennur upp. Frétt af mbl.is „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Þurfi að hefja samtal sem fyrst Í samtali við mbl.is fyrr í dag sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, að verðbólgumælingar Hagstofunnar vera enn eina vísbendinguna um að forsendur kjarasamninga bresti en í kjarasamningum sambandsins er forsenduákvæði sem kveður á um að ef verðbólgan verði yfir 4,7 prósentum í ágúst á þessu ári muni sambandið geta sagt upp kjarasamningum með endurskoðun í september. Aðspurður segir Bjarni enga ástæðu til þess að gefa sér fyrir fram eitthvað um slíkar aðgerðir enn þá en að eðlilegt sé að aðilar samninganna hefji samtal sem fyrst um möguleg viðbrögð við stöðunni. Bendir hann aukinheldur á að oft hafi það gerst að forsendur í kjarasamningum bresti en þá sé mjög misjafnt hver viðbrögðin séu hverju sinni. Frétt af mbl.is „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Tvö bréf send án mikilla viðbragða „Við hjá Samtökum atvinnulífsins höfum kallað eftir því að stjórnvöld gerðu meira í því að beita sér fyrir svona þríhliða samtali þannig að það væri hægt að stilla saman strengi eins og mögulegt er við þessar aðstæður. Það höfum við gert með bréfi frá formanni samtakanna í tvígang á þessu ári en svo sem ekki fengið mikil viðbrögð við því.“ Aðspurður segir Bjarni að í bréfunum hafi samtökin lagt áherslu á að það væri allra hagur að aðilar fái sameiginlega sýn á verkefnin fram undan. „Í millitíðinni frá því að fyrsta bréfið var sent hafa aðstæður versnað, vextir hafa hækkað og verðbólga er enn að hækka. Við höfum lagt áherslu á að allir aðilar þyrftu að koma saman og ræða það hvers vegna kostnaðarmat kjarasamninga gekk ekki eftir. Laun hafa hækkað allt of mikið, ekki síst hjá hinu opinbera, og langt umfram það sem samið var um. Svo eru ýmsir þættir sem SA hefur rakið í samtölum við stjórnvöld og koma fram í bréfinu, eins og við greindum frá í vikunni. Það er mjög mikilvægt að menn nýti tímann vel til þess að bregðast við þessari alvarlegu stöðu.“ „Þetta er ekki góður kokteill“ Bjarna segist þó einna helst vera umhugað núna um samkeppnisstöðu atvinnulífsins á Íslandi. „Við búum við hátt gengi, við búum við hátt launastig, við búum við verðbólgu sem er að hækka og höfum haft vexti háa um langt skeið og þeir fara hækkandi. Þetta er ekki góður kokteill fyrir samkeppnisskilyrði atvinnulífs. Sögulega þá höfum við kannski séð gengið gefa eftir við þær aðstæður en um þessar mundir er hins vegar viðskiptajöfnuður í ágætis jafnvægi og viðskiptakjör erlendis mjög sterk; fiskverð er hátt, álverð hátt og raforkuverð er að hækka. Þannig að við getum ekki haft einhverjar sérstakar væntingar um að þetta leysi sig sjálft í gegnum gengið og þess vegna kemur ekki á óvart að sjá að atvinnuleysi er að hækka.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán „Dýrt að sitja uppi með óseldar íbúðir“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sjö ára sonurinn: Hvað er Salah að pæla? X-Files að ganga aftur? Pattra og Alexandra Helga eldhressar hjá Sophie „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Rauði krossinn opnar fjöldahjálparstöð Umræðan Seinkum upphafi skóladags Það þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Stangast á við heimildarmenn „Umferðin með minna móti“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Katla minnir á sig Vill láta kanna bakgrunn Strætó stöðvar allan akstur á höfuðborgarsvæðinu Næsta lægð væntanleg á laugardag Appelsínugular viðvaranir á stórum hluta landsins Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Sjö ára sonurinn: Hvað er Salah að pæla? X-Files að ganga aftur? Pattra og Alexandra Helga eldhressar hjá Sophie „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Rauði krossinn opnar fjöldahjálparstöð Umræðan Seinkum upphafi skóladags Það þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Björgunarsveitarmenn keyrðu á milli strætóskýla Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Vill láta kanna bakgrunn Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Katla minnir á sig Vill láta kanna bakgrunn Strætó stöðvar allan akstur á höfuðborgarsvæðinu Næsta lægð væntanleg á laugardag Appelsínugular viðvaranir á stórum hluta landsins Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl