Viðskipti | mbl | 26.3.2026 | 16:13 Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Una Jónsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika » Fleiri tengdar fréttir Það eru vond tíðindi að sjá verðbólguna aukast úr 5,2% í 5,4% en það kemur þó ekki á óvart. Þetta segir Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, spurð út í verðbólgutölurnar í morgun. Verðbólgan hefur ekki verið hærri hérlendis í eitt og hálft ár, eða í síðan í september árið 2024. Frétt af mbl.is Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Olíuverðshækkanir helsti óvissuþátturinn Í tilkynningu frá greiningardeild Landsbankans kemur fram að hún hafi spáð þessari hækkun verðbólgu og að hækkun á eldsneytisverði í mars hafi mest áhrif haft til hækkunar. „Olíuverðshækkanir vegna stríðsins verða áfram helsti óvissuþátturinn inn í verðbólguspám og þróun þess fer bara eftir því hversu langvinnt stríðið verður,“ svarar Una, spurð út í óvissuna í tengslum við eldsneytisverðið. Frétt af mbl.is „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Landsbankinn. mbl.is/Karítas Margar ástæður fyrir hærri matarkörfu Matarkarfan hækkaði umfram spá greiningardeildar Landsbankans. Una segir þessa hækkun sýna að almennur verðbólguþrýstingur sé til staðar og fyrir því geti verið margar ástæður. „Hækkunin er nokkuð áþekk hvort sem um innflutta eða innlenda matvöru sé að ræða, þannig það er erfitt að benda á einhverja eina skýringu. Við vitum þó að laun hafa til að mynda hækkað talsvert undanfarið og það býr til verðbólguþrýsting,“ greinir hún frá. Frétt af mbl.is „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ Stýrivextir gætu hækkað um 0,5 prósentustig Aðspurð kveðst hún vissulega hafa áhyggjur af stöðu mála varðandi verðbólguna. Margt sé í húfi og til dæmis gætu kjarasamningar auðveldlega losnað í haust út af forsenduákvæðinu eins og spáð hefur verið um. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Karítas Greiningardeild Landsbankans telur líkur á að stýrivextir verði hækkaðir aftur í maí, í annað sinn í röð, miðað við bráðabirgðaspá hennar um 5,5% verðbólgu í apríl, sem síðan muni lækka næstu mánuði á eftir. Hversu mikið gætu stýrivextir Seðlabankans hækkað? „Það er góð spurning. Ég held að líkt og á síðasta fundi verði til umræðu að hækka þá um annað hvort 25 eða 50 punkta miðað við stöðuna eins og hún er í dag,“ svarar Una. Frétt af mbl.is „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Toppurinn vonandi náðst Beðin um að meta langtímahorfurnar segir hún: „Ég vonast til þess að við séum að sjá topp verðbólgunnar núna, þ.e. að það sé gripið nægilega vel inn til þess að spár fari ekki versnandi. Seðlabankinn var með skýr skilaboð í síðustu viku og ef fram heldur sem horfir held ég að þetta muni þróast í rétta átt.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Aðgerðaleysi er mjög vond hugmynd“ „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Hvað setti Gaza-stríðið af stað? Sigurður Már Jónsson Sjálfsmörk ríkisstjórnarinnar Fleira áhugavert Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Strætó stöðvar allan akstur á höfuðborgarsvæðinu Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Lindex opnar í stað Next í Kringlunni Jóhann Már í stærra hlutverk hjá Wolt Nova og Rafal stofna hátæknifélag Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Beint: Ásgeir fer yfir málin Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Norðuráls Landsbankinn hækkar vexti Harpa tapaði 138 milljónum Kristrún á skjön við Seðlabanka Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Kristrún á skjön við Seðlabanka Landsbankinn hækkar vexti Þreföld eftirspurn fyrsta daginn Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Pistlar » Sigurður Már Jónsson Hvað setti Gaza-stríðið af stað? Sigurður Már Jónsson Sjálfsmörk ríkisstjórnarinnar Fleira áhugavert „Umferðin með minna móti“ Reykjanesbrautin er lokuð Katla minnir á sig Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Lindex opnar í stað Next í Kringlunni Jóhann Már í stærra hlutverk hjá Wolt Nova og Rafal stofna hátæknifélag Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Beint: Ásgeir fer yfir málin Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Norðuráls Landsbankinn hækkar vexti Harpa tapaði 138 milljónum Kristrún á skjön við Seðlabanka Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Ellefu milljarðar gætu núllast út Katrín Jakobsdóttir tilnefnd í stjórn fasteignafélags Kristrún á skjön við Seðlabanka Landsbankinn hækkar vexti Þreföld eftirspurn fyrsta daginn Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk