Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Þetta er orðið algjörlega sturlað“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.3.2026 | 10:51 | Uppfært 11:15 „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Vilhjálmur Birgisson. mbl.is/Kristinn Magnússon Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán „Dýrt að sitja uppi með óseldar íbúðir“ Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst » Fleiri tengdar fréttir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, segir nýjustu verðbólgumælingar enn eina vísbendinguna um að forsendur kjarasamninga muni ekki halda. Þá hafi verðtryggðar skuldir íslenskra heimila hækkað um 61 milljarð á síðustu fjórum mánuðum. „Það er alveg greinilegt að planið er ekki að virka,“ segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is en verðbólgan mælist nú 5,4% og eykst á milli mánaða en hún mældist 5,2% í lok febrúar. Fram kemur í tilkynningu frá Hagstofu Íslands að vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2026, sé nú 678,3 stig og hækki um 0,55% frá fyrri mánuði. Frétt af mbl.is Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Verðtryggðar skuldir hækkað um 61 milljarð „Til að reyna að átta sig á þessari stöðu: Þegar við erum með skuldir okkar svona beintengdar við þessa umræddu vísitölu þá munu verðtryggðar skuldir íslenskra heimila núna í þessum mánuði hækka um 11 milljarða króna. Þetta er orðið algjörlega sturlað og á síðustu fjórum mánuðum hafa verðtryggðar skuldir íslenskra heimila hækkað um 61 milljarð. Þetta er enn ein vísbendingin um það að forsendur kjarasamninga muni ekki halda. Það er held ég alveg orðið ljóst miðað við þann takt sem við erum að sjá í verðbólgunni. Það verður bara að koma í ljós hvernig menn bregðast við því,“ segir Vilhjálmur en í kjarasamningum sambandsins er forsenduákvæði sem kveður á um að ef verðbólgan verði yfir 4,7 prósentum í ágúst á þessu ári muni sambandið geta sagt upp kjarasamningum með endurskoðun í september. Frétt af mbl.is „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ „Verðtryggingarskýstrókur“ Bætir hann við að umrætt ástand sé ekki það sem Breiðfylkingin svokallaða hafi búist við þegar hún samdi um kjarasamninga með hófstilltum hætti til langs tíma í mars 2024 og að það sé morgunljóst að launafólk, og þá sérstaklega verkafólk og lágtekjufólk, geti ekki axlað ábyrgðina eitt og sér þegar aðrir virðast ekki tilbúnir til að róa í sömu átt. „Skuldir íslenskra heimila: Þetta eru þolendurnir og það eru ekki bara þessir þolendur því að þegar neysluvísitalan hækkar um 0,55% þá mun leiguverð hækka sem nemur þessari prósentutölu. Þetta er verðtryggingarskýstrókur sem kyndir verðbólguna líka áfram.“ „Hvernig á þetta að geta gengið upp?“ Vilhjálmur nefnir sem dæmi að leiguvísitala Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá því að kjarasamningar Breiðfylkingarinnar voru undirritaðir í mars 2024 til dagsins í dag hafi hækkað um 17%. Það þýði að markaðsleiga sem var á 350.000 krónur í mars 2024 sé í dag komin upp í 409.000 krónur. „Þetta hefur hækkað um 59.000 krónur og til þess að hafa 59.000 krónur í ráðstöfunartekjur þarftu að vera með launahækkun upp á 90.000 krónur. Launataxtarnir okkar frá undirritun kjarasamningsins hafa hækkað um 73.000 krónur. Þannig að launahækkunin sem við sömdum um dugar ekki einu sinni til að elta launavísitölu leiguverðs. Ég spyr þá bara: hvernig á þetta að geta gengið upp? Af því að síðan áttu eftir alla hina kostnaðarliðina sem hafa hækkað samhliða.“ Undarlegt, stefnulaust og ábyrgðarlaust Vilhjálmur segir að skipstjóra vanti til að taka málið föstum tökum. Þá sé sífellt talað um samráð við aðila vinnumarkaðsins en segist Vilhjálmur einfaldlega ekki kannast við neitt samráð. „Mér finnst þetta allt vera mjög undarlegt og stefnulaust og mér finnst það vera ábyrgðarlaust að taka ekki þá stöðu sem upp er að teiknast í íslensku samfélagi alvarlega.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán „Dýrt að sitja uppi með óseldar íbúðir“ Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Jóhann Berg hætti við Tíma muni taka að hálkuverja Daníel Tristan spenntur að spila með „Viktori litla“ Árstíðarverur og Skólastjórinn tilnefnd Umræðan Seinkum upphafi skóladags Þegar sérlausnir verða að sögusögnum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stangast á við heimildarmenn Reykjanesbrautin er lokuð Viðverugreiðslur fyrir 220 milljónir Strætó stöðvar allan akstur á höfuðborgarsvæðinu Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Vill láta kanna bakgrunn Appelsínugular viðvaranir á stórum hluta landsins Katla minnir á sig Fyrsti veitingastaðurinn í Úlfarsárdal Næsta lægð væntanleg á laugardag Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Jóhann Berg hætti við Tíma muni taka að hálkuverja Daníel Tristan spenntur að spila með „Viktori litla“ Árstíðarverur og Skólastjórinn tilnefnd Umræðan Seinkum upphafi skóladags Þegar sérlausnir verða að sögusögnum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill láta kanna bakgrunn „Umferðin með minna móti“ Farið að draga í skafla á þekktum stöðum Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Vill láta kanna bakgrunn Appelsínugular viðvaranir á stórum hluta landsins Katla minnir á sig Fyrsti veitingastaðurinn í Úlfarsárdal Næsta lægð væntanleg á laugardag Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl

Share this article